Fjölskyldunefnd, fundur 14
7. október 2024, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson
- Anna Marín Þórarinsdóttir
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 867 liður 10
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 7. október.
Bæjarstjórn, fundur 384 liður 4
Til máls tóku Stefán Þór Eysteinsson og Ragnar Sigurðsson
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 7. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá grunnskóla 2025
Mál 2409167 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir árið 2025. Breyting á gjaldskrá grunnskóla hækkar um 5.6% milli ára.
-
2. Gjaldskrá tónlistarskóla 2025
Mál 2409163 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir tónlistarskóla árið 2025. Breyting á gjaldskrá tónlistarskóla hækkar um 2,5% fyrir 20 ára og yngri og 5.6% fyrir 21 árs og eldri á milli ára.
-
3. Gjaldskrá sundlauga 2025
Mál 2409162 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir sundlaugar árið 2025. Breyting á gjaldskrá sundlauga hækkar um 2.5% milli ára.
-
4. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2025
Mál 2409161 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu árið 2025. Breyting á gjaldskrá stuðningsþjónustu hækkar um 5.6% milli ára.
-
5. Gjaldskrá skíðasvæðis 2025
Mál 2409156 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir skíðasvæðið árið 2025. Breyting á gjaldskrá skíðasvæðis hækkar um 2.5 % fyrir börn og 5.6% fyrir fullorðna á milli ára. Parakortin falla úr gildi. Stjórnanda íþróttamála falið að uppfæra gjaldskrá í samræmi við samþykktir á fundinum.
-
6. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2025
Mál 2409153 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir líkamsræktarstöðvar árið 2025. Breyting á gjaldskrá líkamsræktastöðva hækkar um 5.6% milli ára. Parakortin falla úr gildi. Stjórnanda íþróttamála falið að uppfæra gjaldskrá í samræmi við samþykktir á fundinum.
-
7. Gjaldskrá leikskóla 2025
Mál 2409151 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla árið 2025. Breyting á gjaldskrá leikskóla hækkar um 2.5% milli ára.
-
8. Gjaldskrá íþróttahúsa 2025
Mál 2409147 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá fyrir íþróttahús Fjarðabyggðar árið 2025. Breyting á gjaldskrá íþróttahúsa hækkar um 5.6% milli ára.
-
9. Gjaldskrá þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn 2025
Mál 2409169 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir gjaldskrá stuðningsfjölskyldna árið 2025.
-
10. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2025
Mál 2409146 Allur ferill málsins
Fjölskydunefnd leggur til framlagðar breytingar á gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2025. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2025 hækkar um 5.6%
-
11. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2025
Mál 2409136 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagða breytingu á gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2025. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðabliki hækkar um 5.6%
-
12. Gjaldskrá frístundaheimila 2025
Mál 2409135 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingur á gjaldskrá frístundaheimila. Gjaldskrá frístundaheimila hækkar um 2.5%.
-
13. Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2025
Mál 2409130 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingur á gjaldskrá félagsmiðstöðva. Gjaldskrá félagsmiðstöðva hækkar um 5.6%. Tinna Smáradóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni og Birta Sæmundsdóttir situr hjá.
-
14. Gjaldskrá bókasafna 2025
Mál 2409125 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefndin samþykkir framlagðar breytingar á gjaldskrá bókasafna Fjarðabyggðar. Gjaldskrá bókasafna hækkar um 5.6%.
-
15. Nægjusamur nóvember
Mál 2409177 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur sviðstjóra að afla frekari upplýsinga.
-
16. Málþing geðheilbrigðismála
Mál 2409191 Allur ferill málsins
Fjölskyldusvið verður með erindi á málþinginu. Alma Sigurbjörnsdóttir fjallar um áfallamiðstöðina og mál henni tengdri og Sigurður Ólafsson fjallar um bjargráð og fjölskylduráðgjöf sem meðferðarúrræði.
-
17. Ívilnanaheimildir Menntasjóðs námsmanna
Mál 2409199 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur sviðstjóra Fjölskyldusviðs að vinna málið áfram.
-
18. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2025
Mál 2409021 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að styrkja Kvenaathvarfið um umbeðna upphæð sem nemur 200.000 kr.
-
19. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
Mál 2004159 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar hugmyndir og felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að vinna málið áfram.
-
20. Stuðningsþjónusta Fjarðabyggðar
Mál 2306119 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir breytingar á stuðningsþjónustu sem felur í sér að við mat á beiðnum um þrif sé tekið mið af raunþörf einstaklinga við mat á stuðningsþjónustu. Íbúar sem einungis sækja um þrifaþjónustu og þarfnast ekki almennrar stuðningsþjónustu verður beint til þrifaþjónustufyrirtækja. Í þeim tilvikum þar sem einstaklingurinn er undir eigna- og tekjumörkum getur viðkomandi sótt um stuðning við greiðslu þjónustunnar í formi fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélaginu. Breytingar þessar taka gildi um áramót.
-
21. Drög að reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk
Mál 2410030 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur sviðsstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
-
22. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Mál 2404222 Allur ferill málsins
Farið yfir launaáætlun Fjölskyldunefndar með skýringum og leiðréttingu vegna launakostnaðar.
-
23. Trúnaðarmál - Fyrirspurn vegna kaup á líkamsræktar Reyðafjarðar