Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 870

4. nóvember 2024, kl. 08:30 til 09:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 386 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 4. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2404213 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2025 auk 3ja ára áætlunar fyrir árin 2026-2028.

    Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu til fyrri umræðu bæjarstjórnar.

  2. 2. Útsvar 2025

    Mál 2410181 Allur ferill málsins

    Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2025 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

    Bæjarráð samþykkir að álagningarhlutfall útsvars árið 2025 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu hlutfalls.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025

    Mál 2404222 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka nefndarinnar.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2025.

  4. 4. Alþingiskosningar 2024

    Mál 2410081 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnunartíma þeirra á kjördegi Alþingiskosninga þann 30. nóvember nk.

    Yfirkjörstjórn leggur til að kjörstaðir og opnunartímar þeirra verði:

    Mjóifjörður: Sólbrekka

    Norðfjörður: Nesskóli

    Eskifjörður: Eskifjarðarkirkja

    Reyðarfjörður: Safnaðarheimilið

    Fáskrúðsfjörður: Grunnskóli

    Stöðvarfjörður: Grunnskólinn

    Breiðdalsvík: Grunnskólinn

    Opið verði frá 09:00 til 22:00 á kjördag nema í Mjóafirði verði opið frá kl. 09:00-14:00 (lokun þar verði eins fljótt og unnt er skv. 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021).

    Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnun þeirra vegna Alþingiskosninga sem fara fram 30. nóvember.

  5. 5. Reglur Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning

    Mál 2410179 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs búfjár og afgreiðslu mála sem tengist því.

    Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi bréfritara.

  7. 7. Erindi um styrk til greiðslu fasteignaskatts

    Mál 2410212 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni frá Ferðafélagi fjarðamanna um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn greiðslu fasteignaskatts sbr. 1. gr. reglna um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.

  8. 8. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Fundargerð 953. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fjölskyldunefnd - 15

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. október sl. lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
    2. 9.2 Okkar heimur á norður- og austurlandi2410075
    3. 9.3 Íþrótta- og tómstundastyrkir 20252410178
    4. 9.4 Sundlaugin á Stöðvarfirði2410076
    5. 9.5 Reglur Fjarðabyggðar um sérstakan húsnæðisstuðning2410179
  10. 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. október.

    1. 10.1 Staða verkefnisins endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna2410119
    2. 10.2 Umsögn varðandi vindorkugarð í Fljótdalshreppi2410132
    3. 10.3 Umsókn um stækkun á lóð fyrir bílastæði2410162
    4. 10.4 Olíutankar á Reyðarfirði.2410164
    5. 10.5 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20242404185
    6. 10.6 Opnunartími móttökustöðvar á Stöðvarfirði2410167
  11. 11. Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 4

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til afgreiðslu bæjarráð fundargerð rýnihóps frá 16. október 2024

  12. 12. Starfshópur um breytingar í leikskólum - 4

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til afgreiðslu bæjarráðs fundargerð starfshóps um leikskóla frá 16. október 2024

  13. 13. Starfshópur um breytingar í leikskólum - 5

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til afgreiðslu bæjarráðs fundargerð starfshóps um leikskóla frá 23. október 2024.