Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 871

11. nóvember 2024, kl. 08:30 til 10:50, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 387 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku:Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 11. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA

    Mál 2306119 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi HSA og Fjarðabyggðar um samþættingu þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings. Farið yfir verkefnið gott að eldast og efni samningsins með fulltrúum frá heilbrigðisráðuneytinu.

    Bæjarráð þakkar kynningu á samningi og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs, stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu og bæjarstjóra að vinna áfram að frágangi samnings með hlutaðeigandi aðilum og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025

    Mál 2409131 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2025.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar 2025 og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2025.

  3. 3. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025

    Mál 2409159 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd tillögu að gjaldskrá skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2025.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætunargerðar 2025 og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2025.

  4. 4. Kæra frá Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

    Mál 2411042 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá úrskurðarnefndar um upplýsingamál um kæru frá Ívari Ingimarssyni og Hrefnu Arnardóttur vegna ákvörðunar Fjarðabyggðar að synja beiðni um aðgang að gögnum.

    Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi úrskurðarnefndar.

  5. 5. Samskiptastefna FJB - Aton

    Mál 2410169 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samskiptastefnu fyrir Fjarðabyggð sem ráðgjafafyrirtækið Aton var fengið til að hanna og fylgdu fulltrúar fyrirtækisins henni úr hlaði.

    Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að vinna með málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  6. 6. Rýni- og starfshópar í grunn- og leikskólum

    Mál 2409081 Allur ferill málsins

    Á fundum starfs- og rýnihópa leik- og grunnskóla hefur verið samþykkt að fresta störfum hópanna þar til kjarasamningar við Kennarasamband Íslands hafa verið gerðir. Í ljósi þess að kjarasamningar hafa ekki enn náðst er óvissa um samningsbundna skilmála og umgjörð skólastarfsins. Stefnt er að því að taka upp þráðinn á nýju ári og vinna að niðurstöðum í hópunum í tíma fyrir skólaárið 2025-2026. Þó verður tekið mið af breytingum á gjaldskrá leikskóla, sem stefnt er að innleiða um komandi áramót, þar sem lögð er áhersla á að efla starfsumhverfi skólanna. Bæjarráð mun halda áfram að fylgjast með þróun mála og tryggja að starfshóparnir fái viðeigandi stuðning til að ná fram umbótum í samræmi við nýja kjarasamninga og markmið sveitarfélagsins um öflugt og faglegt skólastarf.

  7. 7. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2024

    Mál 2411022 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 82 og 83. ásamt aðalfundargerð samtakanna.

  8. 8. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Fundargerð 954. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 77 og 78. ásamt aðalfundargerð lögð fram til kynningar.

  10. 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 6. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 10.1 Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði2301057
    2. 10.2 Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402026
    3. 10.3 Byggingarleyfi breytingar inni Egilsbraut 222411001
    4. 10.4 Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun2410182
    5. 10.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæbakki 282410129
    6. 10.6 Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,7352409211
    7. 10.7 Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk2410168
    8. 10.8 Framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði2410177
    9. 10.9 Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað2410211
    10. 10.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 12411017
    11. 10.11 Fjölskyldusvæði við Starmýri2409229
    12. 10.12 Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð2404177
    13. 10.13 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20252409159
  11. 11. Fjölskyldunefnd - 16

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 4. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 11.1 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
    2. 11.2 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2024-20252410176
    3. 11.3 Stytting vinnuvikunnar - Bókasöfn Fjarðabyggðar2411004
  12. 12. Hafnarstjórn - 319

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 12.1 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20252409131
    2. 12.2 Endurnýjun stálþilja vegna tæringar1710016
    3. 12.3 Mat á stöðu innviða - Hafnir2410166
    4. 12.4 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20242410218
    5. 12.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027
  13. 13. Starfshópur um breytingar í leikskólum - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð starfshóps um breytingar í leikskólum frá 7. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  14. 14. Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð rýnihóps um breytingar í grunnskólum frá 7. nóvember 2024 lögð fram til afgreiðslu.