NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 21
6. nóvember 2024, kl. 16:15 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 871 liður 10
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 6. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 387 liður 3
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 6. nóvember utan liðar 3 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
Mál 2301057 Allur ferill málsins
Framlagt innra vinnuskjal frá Nestak varðandi vinnu þeirra við klæðningu grunnskólans á Eskifirði. Áætluð verklok eru í byrjun desember næstkomandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur áherslu á að verkinu ljúki sem fyrst.
-
2. Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2402026 Allur ferill málsins
Óskað er eftir breyttu nýtingarhlutfalli á lóð að Kirkjubólseyri 2. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
3. Byggingarleyfi breytingar inni Egilsbraut 22
Mál 2411001 Allur ferill málsins
Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu þessa liðar.
Sótt er breytingu á notkun Egilsbraut 22 sem er í dag skráð sem geymsluhúsnæði sem breytist í veislusal út frá veitingahúsi fyrir ca. 50 manns. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytinguna.
-
4. Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun
Mál 2410182 Allur ferill málsins
Sótt er um breytingu á notkun að Búðareyri 25. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að útfæra málið frekar og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
5. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæbakki 28
Mál 2410129 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð að Sæbakka 28. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að yfirfara beiðnina m.t.t væntanlegs göngustígs og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,735
Mál 2409211 Allur ferill málsins
Framlögð drög að svari við bréfi lóðareiganda Strandgötu 94 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að svari og felur sviðsstjóra að ganga frá því og senda.
-
7. Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk
Mál 2410168 Allur ferill málsins
Strandgata 58, Eskifirði er eignarlóð. Sótt er um leigulóð til vesturs fyrir sólpall. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið en staðsetja þarf lagnir hitaveitu áður en úthlutun stækkunar á lóðinni fer fram. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að staðsetja lagnir á teikningu og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
8. Framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði
Mál 2410177 Allur ferill málsins
Leggja á 3X25 háspennustreng á milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði um 2 km. leið. Strengurinn leysir af loftlínu sem reist var árið 1975 og hefur legið undir skemmdum vegna snjóflóða sem hafa fallið á þessu svæði loftlínunnar. Áætlað er að fara í framkvæmdir vor 2025 eða um leið og aðstæður leyfa. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll gögn liggja fyrir.
-
9. Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað
Mál 2410211 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grendakynna stöðuleyfið fyrir íbúum Marbakka 14 og 12 og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
10. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 1
Mál 2411017 Allur ferill málsins
Umsókn um stækkun á lóð við Óseyri 1, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið frekar og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
11. Fjölskyldusvæði við Starmýri
Mál 2409229 Allur ferill málsins
Tillaga að útfærslu á fjölskyldusvæði við Starmýri. Skipulags- og framkvæmdanefnd líst vel á útfærsluna og felur sviðsstjóra að ræða við hönnuð um nánari útfærslur á því.
-
12. Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
Mál 2404177 Allur ferill málsins
Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að taka saman fleirri gögn og leggja fyrir næsta fund.
-
13. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025
Mál 2409159 Allur ferill málsins
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir gjaldskránna og vísar henni til fjárhagsáætlunar 2025.