NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 20
29. október 2024, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 870 liður 10
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. október.
Bæjarstjórn, fundur 386 liður 6
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Staða verkefnisins endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna
Mál 2410119 Allur ferill málsins
Staða verkefnisins endurskoðun leiðarkerfis landsbyggðarvagna, erindi frá Vegagerðinni. Sviðsstjóra falið að setja sig í samband við Vegagerðina og fylgja eftir áherslum sveitafélagsins.
-
2. Umsögn varðandi vindorkugarð í Fljótdalshreppi
Mál 2410132 Allur ferill málsins
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn vegna vindorkugarðs í Fljótsdalshreppi, nr. 1259/2024: Kynning matsáætlunar (Mat á umhverfisáhrifum) Kynningartími er frá 21.10.2024 til 19.11.2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingar- og skipulagsfulltrúa að vinna að umsögn í samráði við bæjarstjóra og leggja fyrir nefndina.
-
3. Umsókn um stækkun á lóð fyrir bílastæði
Mál 2410162 Allur ferill málsins
Óskað er eftir stækkun á lóð að Hafnarbraut 40 fyrir bílastæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við beiðni um stækkun lóðar þar sem um er að ræða svæði þar sem búið er að koma fyrir lögnum vegna byggingar Hafnargötu 38-40 og þar að leiðandi ekki gert ráð fyrir öðrum bílastæðum en sem nú þegar eru við húsið.
-
4. Olíutankar á Reyðarfirði.
Mál 2410164 Allur ferill málsins
Minnisblað vegna skipulagsmála að Óseyri 2,4 og 6 á Reyðarfirði framlagt. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa í samráði við bæjarrstjóra að halda áfram viðræðum við lóðarhafa um framtíð starfsemi þeirra.
-
5. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2024
Mál 2404185 Allur ferill málsins
Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2024. Fundargerð nr.180 og 181 lagðar fram til kynningar.
-
6. Opnunartími móttökustöðvar á Stöðvarfirði
Mál 2410167 Allur ferill málsins
Opnunartími móttökustöðvar á Stöðvarfirði. Erindi frá Sterkum Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hefur nú til skoðunar málefni tengd móttökustöðvum og sorphirðu á næstu mánuðum í vinnu sinni. Erindinu er vísað til skoðunar í þeirri vinnu.