Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 19

16. október 2024, kl. 16:00 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 868 liður 13

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 386 liður 5

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson,

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. október utan liðar 6 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði

    Mál 2406025 Allur ferill málsins

    Svör við athugasemdum vegna auglýsinga á nýju deiliskipulagi Norðfjörður - tjaldsvæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum við auglýsingu og vísar erindinu til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.

  2. 2. Umsókn um lóð Blómsturvellir 31

    Mál 2410074 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Blómsturvellir 31, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarúthlutnunina og vísar erindinu í bæjarráð.

  3. 3. Umsókn um lóð Strandgata 46c

    Mál 2409052 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun á lóð vegna nú þegar byggðrar viðbyggingar sem reist var í óleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu á stækkun lóðar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að óska eftir frekari gögnum og leggja fyrir nefndina að nýju.

  4. 4. Framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu

    Mál 2408102 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framkvæmdaleyfið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  5. 5. Fjarlægja vinnubúðir að Hlíðabrekku 5 og 7, Fáskrúðsfirði.

    Mál 2409118 Allur ferill málsins

    Fjarlægja vinnubúðir að Hlíðabrekku 5 og 7, Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að fjarlægðar verði vinnubúðir við Híðarbrekku 5-7 á Fáskrúðsfirði á kostnað eiganda. Stöðuleyfi vinnubúðanna er útrunnið síðan 27.9.2023 og hefur eiganda, ítrekað, verið gert að fjarlægja þær en ekki hefur verið brugðist við þeim tilmælum. Er HAUST upplýst um málið og hefur einnig tilkynnt eiganda um að vinnubúðirnar eigi að fara af staðnum.

  6. 6. Lundargata 4 aðgengi

    Mál 2408065 Allur ferill málsins

    Aðgengi að Lundargötu 4, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdarnefnd áréttar að aðgengi að Lundargötu 4 sé frá viðkomandi götu. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að svara bréfritara.

  7. 7. Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði

    Mál 2409108 Allur ferill málsins

    Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði. Erindið var einnig lagt fram á fundi Skipulags- og framkvæmdanefndar nr.17 þann 25.sept 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að fara yfir erindið frekar og leggja tillögur fyrir nefndina að nýju um úrvinnslu þess.

  8. 8. Opnunartíma ruslasvæðis á Stöðvarfirði

    Mál 2409149 Allur ferill málsins

    Ósk um breyttan opnunartíma móttökustöðvar á Stöðvarfirði. Lagt fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd ósk um breyttan opnunartíma á móttökustöð á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd hefur nú til skoðunar málefni tengd móttökustöðvum og sorphirðu á næstu mánuðum í vinnu sinni. Erindinu er vísað til skoðunar í þeirri vinnu.

  9. 9. Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,735

    Mál 2409211 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Lögmannsstofu Sævars Þórs vegna fasteignarinnar að Strandgötu 94 í Fjarðabyggð og gildandi skipulags svæðisins og áætlana um göngustíg með fjörunni sem hluta af sjávarvörnum. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að afla frekari gagna og leggja fyrir nefndina að nýju

  10. 10. Boð á Umhverfisþing

    Mál 2409262 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á IIIX. Umhverfisþing. Umfjöllunarefni þingsins eru náttúruvernd, loftslagsmál og aðlögun að loftslagsbreytingum. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar boðið og felur sviðsstjóra að ákveða með þátttöku á þinginu.

  11. 11. Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar

    Mál 2409216 Allur ferill málsins

    Lög fram til kynningar greinargerð fjármálastjóra um orkukaup fyrir fjarvarmaveitur. Bæjarráð samþykkti að gera samning um kaup á skerðanlegri orku í stað ótryggrar orku frá og með 1.11. 2024.

  12. 12. Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2024

    Mál 2410045 Allur ferill málsins

    Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 1. nóvember. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar boðið og felur sviðsstjóra að ákveða með þátttöku á þinginu.

  13. 13. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2025

    Mál 2409155 Allur ferill málsins

    Tillaga að gjaldskrá Sorpsamlags Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti drög að gjalskrá og vísar henni til frekari umfjöllunar til bæjarráðs.

  14. 14. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025

    Mál 2404221 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar fyrir árið 2025. Skipulags- og framkvæmdarnefnd vísar áætluninni til frekari fjárhagsáætlunargerðar.

  15. 15. Skipulagsdagurinn 2024

    Mál 2410067 Allur ferill málsins

    Skipulagsdagurinn 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar boðið og skipulags- og byggingarfulltrúi mun sækja skipulagsdaginn.

  16. 16. Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna

    Mál 2410082 Allur ferill málsins

    Kynning á umsókn í framkvæmdasjóð ferðamanna 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  17. 17. Númerslausir bílar

    Mál 2304069 Allur ferill málsins

    Umræða um númeralausabíla og aðra lausafjármuni. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að hefja átak í málefnum tengdum númerislausum bílum með umhverfi og ásýnd byggðalaganna í huga.