Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 18

8. október 2024, kl. 14:00 til 15:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Benedikt Jónsson, varamaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 867 liður 11

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. október.

  • Bæjarstjórn, fundur 384 liður 3

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um lóð Búðarmelur 1

    Mál 2409256 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Búðarmelur 1. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.

  2. 2. Umsókn um lóð Miðdalur 18-20

    Mál 2409255 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Miðdalur 18-20. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.

  3. 3. Umsókn um lóðir fyrir dreifistöðvar fyrir hraðhleðslustöðvar

    Mál 2409152 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóðir fyrir dreifistöðvar fyrir hraðhleðslustöðvar. Skipulag- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða staðsetningar frekar í samráði við umsækjanda og þeim sem að málinu koma.

  4. 4. Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2025

    Mál 2409137 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá gatnagerðagjalda sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  5. 5. Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025

    Mál 2409159 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fara yfir leigugjöld á skipulögðum gámasvæðum í samráði við verkefnastjóra hafna og leggja fyrir nefndina að nýju.

  6. 6. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2025

    Mál 2409143 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hunda- og kattahald 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá hunda- og kattahald sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs og umsagna HAUST.

  7. 7. Gjaldskrá vatnsveitu 2025

    Mál 2409168 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá vatnsveitu 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá vatnsveitu sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  8. 8. Gjaldskrá rafhleðslustöðva 2025

    Mál 2409166 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hraðhleðslustöðva 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá hraðhleðslustöðva sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  9. 9. Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2409154 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  10. 10. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2025

    Mál 2409155 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2025. Skipulags- og framkvæmdarnefnd vísar gjaldskránni til frekar vinnslu í fjárhagsáætlun 2025.

  11. 11. Gjaldskrá hitaveitu 2025

    Mál 2409142 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hitaveitu 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá hitaveitu sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  12. 12. Gjaldskrá fráveitu 2025

    Mál 2409133 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá fráveitu 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá fráveitu sem taki gildi 1.1.2025 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.

  13. 13. Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024

    Mál 2309099 Allur ferill málsins

    Hækka þarf gjaldskrá fjarvarmaveita frá og með 1.11. 2024 í samræmi við breytingar á kaupum á raforku til kyndingar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytta gjaldskrá frá 1.11.2024.

  14. 14. Stafrænt byggingarleyfi

    Mál 2409225 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd tölvupósti frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um stafræn byggingarleyfi sem stofnunin er að innleiða. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  15. 15. Framkvæmdaleyfi stækkun á framkvæmdasvæði Nes- og bakkagil

    Mál 2410046 Allur ferill málsins

    Stækkun á framkvæmdasvæði um 3.000 m2 vegna efnisvinnslu við snjóflóðavarnir. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaða stækkun og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.