Bæjarráð, fundur 868
21. október 2024, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 386 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson
Fundargerð bæjarráðs frá 21. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Farið yfir drög að launaáætlun fyrir árið 2025 sem hluta af fjárhagsáætlun næsta árs ásamt drögum að tekjuáætlun.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerðina 2025.
-
2. Rekstur málaflokka 2024
Mál 2403158 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - ágúst og skatttekjur og launakostnaður janúar - september. Einnig samandregið rekstraryfirlit og rekstrarreikningur fyrir janúar - ágúst 2024.
-
3. Gjaldskrá hitaveitu 2025
Mál 2409142 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2025.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2025 en hún hækkar sem nemur verðlagsbreytingum 5,6%. Breytingin tekur gildi frá og með 1. janúar 2025.
-
4. Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar
Mál 2409216 Allur ferill málsins
Samningur um orkukaup við Orkusöluna fyrir fjarvarmaveitur lagðar fyrir til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
5. Gjaldskrá fráveitu - hreinsun rotþróa
Mál 2410115 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Hákonar Björnssonar vegna álagningar rotþróargjalda, tíðni tæminga og árgjald.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að svara erindi bréfritara.
-
6. Umsókn um lóð Blómsturvellir 31
Mál 2410074 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Blómsturvelli 31 á Norðfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
7. Undirkriftarlisti varðandi lokun á líkamsræktarstöð á Reyðarfirði
Mál 2410116 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar undirskriftarlisti íbúa sem leggjast gegn lokun líkamsræktarstöðvar í íþróttahúsinu á Reyðarfirði.
-
8. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Mál 2205172 Allur ferill málsins
Fjallað um skipan fulltrúa fjölmenningarráðs
Bæjarráð vísar til fjölskyldusviðs að leita tilnefninga 5 aðalfulltrúa og 5 varafulltrúa en fulltrúar sveitarstjórnar verða kjörnir þegar tilnefning liggur fyrir.
-
9. Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
Mál 2410121 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um óbreytt endurgreiðsluhlutfall fyrir árið 2025 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Neskaupstaðar í B-deild Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir endurgreiðsluhlutfallið.
-
10. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands
Mál 2410089 Allur ferill málsins
Framlagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem haldinn verður 6. nóvember nk.
Bæjarráð felur Stefáni Þór Eysteinssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
11. Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2024
Mál 2410102 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð aðalfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga sem haldinn verður 30. október nk.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
12. Stjórnkerfisnefnd 2020-2024
Mál 2011203 Allur ferill málsins
Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd tekur til afgreiðslu tillögu vegna breytinga á skipulagi fjölskyldumála.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 19
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði2406025
- 13.2 Umsókn um lóð Blómsturvellir 312410074
- 13.3 Umsókn um lóð Strandgata 46c2409052
- 13.4 Framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu2408102
- 13.5 Fjarlægja vinnubúðir að Hlíðabrekku 5 og 7, Fáskrúðsfirði.2409118
- 13.6 Lundargata 4 aðgengi2408065
- 13.7 Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði2409108
- 13.8 Opnunartíma ruslasvæðis á Stöðvarfirði2409149
- 13.9 Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,7352409211
- 13.10 Boð á Umhverfisþing2409262
- 13.11 Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar2409216
- 13.12 Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 20242410045
- 13.13 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20252409155
- 13.14 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 20252404221
- 13.15 Skipulagsdagurinn 20242410067
- 13.16 Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna2410082
- 13.17 Númerslausir bílar2304069