Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 876

23. desember 2024, kl. 08:30 til 09:40, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 390 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku. Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. desember utan liða 8. og 9. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2409205 Allur ferill málsins

    Lögð fyrir til kynningar drög að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2025-2034.

    Vísað til áframhaldandi vinnu og til næsta fundar bæjarráðs.

  2. 2. Kauptilboð í Sólbakka 7 Breiðdalsvík frá Sigurði og Tatiana

    Mál 2412136 Allur ferill málsins

    Framlagt tilboð í fasteignina Sólbakka 7 á Breiðdalsvík.

    Bæjarráð hafnar tilboði.

  3. 3. Niðurfelling fasteignagjalda

    Mál 2412113 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Víkinni fögru ehf. þar sem óskað er eftir afslætti á fasteignagjöldum.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk samkvæmt reglum Fjarðabyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts í hlutfalli af starfsemi sem fellur þar undir.

  4. 4. Ársfundur Brákar 2024

    Mál 2412148 Allur ferill málsins

    Framlagt boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses. miðvikudaginn 15. janúar 2025.

    Bæjarráð samþykkir að fela Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  5. 5. Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður

    Mál 2211108 Allur ferill málsins

    Vísað frá fyrri fundi bæjarráðs tillögu um að óska eftir framlengingu á samningi við Byggðastofnun um verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að óska eftir við Byggðastofnun að verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður verði framlengt um tvö ár.

  6. 6. Flýting vegtengingar Suðurfjarðavegar

    Mál 2412103 Allur ferill málsins

    Fjallað um ástand Suðurfjarðavegar og áætlanir um nýja brú á Sléttuá og vegtengingu fyrir botni Reyðarfjarðar.

    Fjarðabyggð ítrekar fyrri bókanir sínar og leggur ríka áherslu á að flýta framkvæmdum við Suðurfjarðarveg og færslu hringvegarins í Reyðarfjarðarbotni og byggingu nýrra brúa yfir Sléttuá.

    Brúin yfir Sléttuá er umferðarþyngsta einbreiða brú á Austurlandi og jafnframt ein elsta brú landsins á hringveginum í dag. Fyrir vikið er þessi vegkafli, ásamt brúm, orðinn verulegur áhættuþáttur í þungaflutningum til og frá Suðurfjörðum Fjarðabyggðar.

    Fjarðabyggð leggur þunga áherslu á að verkhönnun hefjist strax á árinu 2025 og að framkvæmdir hefjist sem fyrst í kjölfarið. Það er mikilvægur öryggis- og hagsmunamál fyrir íbúa og atvinnulíf í Fjarðabyggð að þessum framkvæmdum verði hraðað eins og kostur er.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ítreka afstöðu sveitarfélagsins til samgönguframkvæmda við Suðurfjarðarveg samanber fyrri ályktanir sveitarfélagsins.

  7. 7. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir Austurbrúar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  8. 8. Ósk um afstöðu til nýtingar forkaupsréttar Naustahvamms 20 í Neskaupstað

    Mál 2412157 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Framlagt erindi frá Hildibrand slf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til nýtingar forkaupsréttar á fasteignina Naustahvamm 20 í Neskaupstað, F 2169466 vegna sölu eignarinnar milli félaga.

    Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt vegna sölu eignarinnar.

  9. 9. Ósk um afstöðu til nýtingar forkaupsréttar Egilsbrautar 26 í Neskaupstað

    Mál 2412158 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Framlagt erindi frá Hildibrand slf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til nýtingu forkaupsréttar á fasteignina Egilsbraut 26 í Neskaupstað, F 2169057 vegna sölu eignarinnar á milli félaga.

    Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt vegna sölu eignarinnar.