Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 877

6. janúar 2025, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 390 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. janúar utan liðar 3 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samráðsvettvangur atvinnulífsins í Fjarðabyggð

    Mál 2501012 Allur ferill málsins

    Umræða um samráðsvettvang atvinnulífsins í Fjarðabyggð.

    Boðað verður til fundar með stærstu fyrirtækjunum í Fjarðabyggð á næstunni. Bæjarstjóra falið að halda utanum undirbúninginn.

  2. 2. Umsókn um skrifstofurými í gömlu Eskju skrifstofunni

    Mál 2412185 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi PolPrin þar sem óskað er eftir skrifstofurými í gömlu Eskju skrifstofunni.

    Húseignin er í sölumeðferð og von er á tilboði í eignina. Því getur bæjarráð ekki orðið við ósk um leigu eða afnot af skrifstofunni.

  3. 3. Ósk um styrk til kaupa á sýningarvél

    Mál 2501009 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Vina Valhallar þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á sýningarvél.

    Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að fara yfir málið með félagasamtökunum og annast afgreiðslu styrksins.

  4. 4. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning Birgis Jónssonar um tímabundið leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi og fulltrúi í hafnarstjórn til 1 júní nk.

    Elís Pétur Elísson tekur sæti hans í bæjarstjórn á sama tíma. Tilnefnt verður í sæti hans í hafnarstjórn á næsta fundi. Jafnframt tilkynnt um ósk Þuríðar Lillýar Sigurðardóttir um framlenginu á leyfi í skipulags- og framkvæmdanefnd til 1. febrúar nk. Jón Björn Hákonarson mun áfram gegna formennsku í nefndinni til 1. febrúar nk.

  5. 5. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Austurbrú og SSA frá 13. desember lagðar fram til kynningar.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Fundargerð 960. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.

  7. 7. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð sameiginlegs fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.

  8. 8. Heimsókn

    Mál 2501019 Allur ferill málsins

    Fulltrúar Ungmennafélags Íslands mættu á fund bæjarráðs. Farið yfir starfsemi félagsins og æskulýðs- og íþróttastarf almennt.