Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 878

13. janúar 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 390 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. janúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2409205 Allur ferill málsins

    Lögð fyrir uppfærð drög að húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2025 til 2034.

    Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fjármálastjóra falið að gera lítilsháttar breytingar í samræmi við umræður á fundinum.

  2. 2. Bréf ráðuneytisins vegna kvartana um ágangsfé

    Mál 2501018 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf innviðaráðuneytisins varðandi afgreiðslu þess á kvörtunum og stjórnsýslukærum vegna lausagöngu búfjár.

  3. 3. Túngata 11b breyting á lóðarmörkum

    Mál 2409012 Allur ferill málsins

    Eigendur Túngötu 11b, Eskifirði bjóða Fjarðabyggð til sölu hluta af eingarlóð sinni vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir Lambeyrarár.

    Bæjarráð felur bæjarritara að fara yfir málið og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  4. 4. Móttaka nýrra íbúa

    Mál 2501057 Allur ferill málsins

    Fjallað um móttöku nýrra íbúa.

    Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að fara yfir útfærslu á móttöku nýrra íbúa og útbúa kynningarefni til afhendingar og ljúka fyrir fyrsta febrúar.

  5. 5. Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu við endurnýjun heimasíðu sveitarfélagsins.

  6. 6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Valsmýri 6

    Mál 2501027 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um stækkun lóðar að Valsmýri 6 740 Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðarsamnings og stækkun lóðarinnar.

  7. 7. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. janúar

    1. 7.1 Umsókn um lóðið að Hjallaleiru 2 og 42412140
    2. 7.2 Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað2410211
    3. 7.3 Byggingarleyfi Miðdalur 18-202412001
    4. 7.4 Stækkun lóða við Hjallaleiru2303218
    5. 7.5 Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 32411122
    6. 7.6 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20242404185
    7. 7.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Valsmýri 62501027
    8. 7.8 Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag2402048