Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2025

Ósk um afstöðu til nýtingar forkaupsréttar Naustahvamms 20 í Neskaupstað

Mál 2412157 Fyrst á dagskrá 23. desember 2024, síðast 16. janúar 2025. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2024

    Bæjarráð, fundur 876 liður 8

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Framlagt erindi frá Hildibrand slf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til nýtingar forkaupsréttar á fasteignina Naustahvamm 20 í Neskaupstað, F 2169466 vegna sölu eignarinnar milli félaga.

    Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt vegna sölu eignarinnar.

  2. 2025

    Bæjarstjórn, fundur 390 liður 1.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 876“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is