Fyrirhugaðar breytingar í fræðslumálum
Mál 2411093 Fyrst á dagskrá 25. nóvember 2024, síðast 5. desember 2024. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 5. desember 2024, frá 0:49:28
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2024
Bæjarráð, fundur 873 liður 8
Lagður fram undirskriftarlisti þar sem gerð er krafa um upplýsingafund vegna fyrirhugaðra breytinga í fræðslumálum.
Lesa alla bókunina (144 orð til viðbótar)
Bæjarráð vísar til bókunar frá bæjarráðsfundi nr. 871 sem segir að starf- og rýnihópar leik- og grunnskóla hafi samþykkt að fresta störfum hópanna þar til kjarasamningar við Kennarasamband Íslands hafa verið gerðir. Í ljósi þess að kjarasamningar hafa ekki enn náðst er óvissa um samningsbundna skilmála og umgjörð skólastarfsins. Stefnt er að því að taka upp þráðinn á nýju ári og vinna að niðurstöðum í hópunum í tíma fyrir skólaárið 2025-2026. Þó verður tekið mið af breytingum á gjaldskrá leikskóla, sem stefnt er að innleiða um komandi áramót, þar sem lögð er áhersla á að efla starfsumhverfi skólanna. Bæjarráð mun halda áfram að fylgjast með þróun mála og tryggja að starfshóparnir fái viðeigandi stuðning til að ná fram umbótum í samræmi við nýja kjarasamninga og markmið sveitarfélagsins um öflugt og faglegt skólastarf.
Þegar kjarasamningar liggja fyrir verður málið tekið fyrir og kynnt hlutaðeigandi aðilum.
-
Bæjarstjórn, fundur 388 liður 2.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 873“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 388. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:49:28 undirskriftan listar fyrir og við vísuðum í bókun frá bæjaráðsfundi númer áttatíu og eitt þar sem segir að starf og rýnihópar leik og grunnskóla hafi samþykkt að fresta störfum hópanna þar til að kjarasamningar við kennarasamband íslands hafa verið gerðir í ljósi þess að kjarasambingar hafa ekki enn náðst er óvissa um samningsbundna skilmála og umgjör skólastarfsins stefnt er að því að taka upp þráðinn á nýju ári og vinna að niðurstöðum í hópunum í tíma fyrir
- 0:49:56 í hópunum í tíma fyrir skólaári tvö og tuttugu og fimm til tvö og tvö og sex þó eru tekin mið af breytingum á gjaldskrá leikskóla sem stendur að innleiða um komandi áramót þar sem lögð er áhersla á efla starfsumhverfi skólanna bæjaráð mun halda áfram að fylgjast með þróun mála og tryggja starfshóparnir fái viðeigandi stuðning til að ná fram umbótum í samræmi við nýja kjarasamninga og markmið sveitarfélagsins um öflugt og faglegt skólastarf þegar kjarasamningar liggja fyrirverðu máli tekið fyrir og tryggjandi aðilum