Kauptilboð í Strandgötu 39 Eskifirði
Mál 2502025 Fyrst á dagskrá 10. febrúar 2025, síðast 6. mars 2025. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 20. febrúar 2025, frá 0:12:08
Í heiti málsins: Eskifjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2025
Bæjarráð, fundur 882 liður 1
Lagt fram kauptilboð í fasteignina Strandgötu 39 á Eskifirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ræða við tilboðsgjafa varðandi kauptilboðið.
-
Bæjarstjórn, fundur 392 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 882“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 392. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:12:08 skrifstofur eskju og þarna voru að taka fyrir kauptilboð sem okkur barst í eignina það kauptilboð er með þeim fyrirvara að samþykki liggi fyrir um að eigninni verði breytt í íbúarhúsnæði og bæjarstjóra og fjármálastjóra var falið að ræða við tilboðsgjafann en þetta er eign sem hefur verið lengi í söluferli hjá okkur
- 0:12:36 og erindið er jákvætt það er vöntun á minni íbúðum á eskifirði og ég vona að þetta samtal leiði til þess að við komum eigninni úr okkar höndum og í einhverja svona uppbyggingu eins og þessa en ennþá hefur ekkert verið afgreitt og ég vænti þess að mál verði tekið fyrir nýju á næstu fundum bæjarós
-
Bæjarráð, fundur 884 liður 5
Tekið fyrir að nýju kauptilboð R101 ehf. í Strandgötu 39 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna sölu eignarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 393 liður 1.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 884“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.