Úthlutun byggðakvóta 2024 og 2025
Mál 2501134 Fyrst á dagskrá 10. febrúar 2025, síðast 20. febrúar 2025. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2025
Bæjarráð, fundur 882 liður 7
Framlagt erindi matvælaráðuneytisins vegna úthlutunar byggðakvóta 2024 til 2025 og gerð sérreglna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir forsendur fyrir úthlutuninni og erindið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
Bæjarráð, fundur 883 liður 6
Tekið fyrir að nýju erindi matvælaráðuneytisins vegna úthlutunar byggðakvóta 2024 til 2025 og gerð sérreglna.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmd á úthlutunar á byggðakvóta verði með sama hætti og á síðasta ári.
Lesa alla bókunina (109 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á matvælaráðuneytið að tryggja að byggðakvótinn verði óbreyttur milli ára og vekur jafnframt athygli á þeim skerðingum sem orðið hafa á Austurlandi, sbr. framangreind gögn. Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri þróun að úthlutanir úr 5,3% pottinum dragist sífellt saman á Austfjörðum, hvort sem litið er til almenns eða sértæks byggðakvóta eða strandveiða.
Bæjarráð ítrekar að markmið byggðafestra aðgerða er að stuðla að stöðugleika í atvinnu- og samfélagsuppbyggingu landsins, ekki síst á þeim svæðum sem standa veikari fæti. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að endurskoða fyrirkomulag kvótaúthlutana með það fyrir augum að stuðla að jafnvægi milli landshluta og tryggja áframhaldandi mannlíf, atvinnu og uppbyggingu á Austurlandi.
-
Bæjarstjórn, fundur 392 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 882“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 392 liður 2.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 883“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.