Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 865

30. september 2024, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Kristinn Þór Jónasson, varamaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 383 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2404213 Allur ferill málsins

    Rætt um fjárhagsáætlunina og stöðu hennar. Lögð fram greining á fyrstu útgáfu af launaáætlun 2025 eins og hún liggur fyrir.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2025.

  2. 2. Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar

    Mál 2409216 Allur ferill málsins

    Umræða um orkukaup fyrir fjarvarmaveitur Hitaveitu Fjarðabyggðar í Neskaupstað og Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra og bæjarstjóra að vinna að málinu og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  3. 3. Kauptilboð í Sólbakka 7 Breiðdalsvík

    Mál 2409226 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í Sólvelli 7 á Breiðdalsvík dagsett 25.9.2024.

    Bæjarráð hafnar kauptilboði.

  4. 4. Kauptilboð í Sólbakka 7 Breiðdalsvík

    Mál 2409238 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í Sólvelli 7 á Breiðdalsvík dagsett 26.9.2024

    Bæjarráð hafnar kauptilboði.

  5. 5. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2409205 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur HMS um samstarf við sveitarfélögin um endurskoðun og uppfærslu stafrænna húsnæðisáætlana en endurskoðun á að ljúka fyrir 20. janúar 2025.

    Vísað til fjármálastjóra.

  6. 6. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóra hefur boðist að taka þátt í ferð viðskiptasendinefndar atvinnulífsins með Íslandsstofu, Grænvangi, Samtökum Iðnaðarins og Dansk-íslenska viðskiptaráðsins í tengslum við fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Danmerkur dagana 7.-10. október næstkomandi. Bæjarstjóri verður hluti sendinefndarinnar.

  7. 7. Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 3

    Mál 2409158 Allur ferill málsins

    Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að lóðin að Búðareyri 3 verði stækkuð til suðurs til samræmis við mörk gróðurs og garðs.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar.

  8. 8. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlögð andmæli frá fjáreiganda Þverhamars vegna áskorunar bæjarráðs um að sauðfé sé smalað af landi Óseyrar.

  9. 9. Samstarfssamningur

    Mál 2409237 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Krabbameinsfélagi Austfjarða um framlengingu á samstarfssamingi Fjarðabyggðar og félagsins.

    Bæjarráð samþykkir að samningurinn verði framlengdur um þrjú ár.

  10. 10. Frumvarp um breytingu á lögum um haf- og strandsvæði í samráðsgátt

    Mál 2409236 Allur ferill málsins

    Framlagt frumvarp um breytingu á lögum um haf- og strandsvæði í samráðsgátt.

    Bæjaráð felur bæjarritara að veita umsögn.

  11. 11. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2024

    Mál 2409228 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð á ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitafélaga sem haldinn verður 9.okt nk.

    Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni forseta bæjarstjórnar að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.

  12. 12. Sambandsgleði í tengslum við fjármálaráðstefnu

    Mál 2409233 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar boð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga á hóf í tengslum við fjármálaráðstefnu.

  13. 13. Boðskort á Sveitarfélag ársins

    Mál 2409231 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar boð á viðburðinn Sveitarfélag ársins 2024 sem haldið verður 17. október 2024.

  14. 14. Líkamsræktaraðstaða á Reyðarfirði

    Mál 2403089 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um stöðu líkamsræktaraðstöðu á Reyðarfirði.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að fara yfir málið frekar og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  15. 15. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Þuríðar Lillýar Sigurðardóttur um leyfi frá störfum sem kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og formennsku í skipulags- og framkvæmdanefnd vegna fæðingarorlofs frá 1. október 2024 til 31. desember 2024.

    Framsóknarflokkurinn gerir eftirfarandi breytingar nefndaskipan á þessum tíma og við formennsku skipulags- og framkvæmdanefndar tekur Jón Björn Hákonarson. Elís Pétur Elísson tekur sæti Þuríðar í bæjarstjórn fyrir sama tíma.

  16. 16. Stafrænt byggingarleyfi

    Mál 2409225 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um stafræn byggingarleyfi sem stofnunin er að innleiða.

    Vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd.

  17. 17. Fjölskyldunefnd - 13

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. september.

    1. 17.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
    2. 17.2 Fundur vegna frumkvæðisathugunar GEV á búsetuúrræðum fatlaðs fólks2409179
    3. 17.3 Málefni innflytjenda2409148
  18. 18. Stjórn menningarstofu - 9

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. september.

    1. 18.1 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    2. 18.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20252404223
    3. 18.3 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 20252409157
    4. 18.4 Gjaldskrá félagsheimila 20252409129
    5. 18.5 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20242402237
  19. 19. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 17

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 25. september.

    1. 19.1 Byggingarleyfi Egilsbraut 8 breyting á notkun2409193
    2. 19.2 Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað2301161
    3. 19.3 Bréf til Framkvæmda- og skipulagsnefndar2409102
    4. 19.4 Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 32409158
    5. 19.5 Umsókn um lóð fyrir bílastæði að Nesbakka 112409209
    6. 19.6 Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 20252409107
    7. 19.7 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður2009034
    8. 19.8 Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði2409108
    9. 19.9 Skólavegur 98-112 frágangur grunna2409029
    10. 19.10 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 20252409137
    11. 19.11 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20252409159
    12. 19.12 Gjaldskrá vatnsveitu 20252409168
    13. 19.13 Gjaldskrá rafhleðslustöðva 20252409166
    14. 19.14 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 20252409155
    15. 19.15 Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 20252409154
    16. 19.16 Gjaldskrá hunda- og kattahald 20252409143
    17. 19.17 Gjaldskrá hitaveitu 20252409142
    18. 19.18 Gjaldskrá fráveitu 20252409133
    19. 19.19 Gjaldskrá fjarvarmaveita 20252409132
    20. 19.20 Fjallskilanefnd - 62407016F
    21. 19.21 Ítrekaður hraðakstur í BakkagerðiÁsgerði2409212
    22. 19.22 Byggingarleyfi Borgarnaust 52409045
  20. 20. Fjallskilanefnd - 6

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjallskilanefndar frá 1. ágúst.

    1. 20.1 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    2. 20.2 Fjallskil og gangnaboð 20242407132