Bæjarráð, fundur 866
7. október 2024, kl. 08:15 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 384 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 7. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu launaáætlunar í fjárhagsáætlunarvinnu 2025.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2025.
-
2. Fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 3
Mál 2410017 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga fjármálstjóra að viðauka 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2024.
Bæjarráð samþykkir viðauka fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
3. Bréf til sveitarstjórnar frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
Mál 2410031 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
Vísað til bæjarstjórnar.
-
4. Líkamsrækt Reyðafjarðar
Mál 2403089 Allur ferill málsins
Tekinn fyrir að nýju samningur um sölu líkamsræktartækja Líkamsræktarinnar í íþróttamiðstöðinni á Reyðarfirði til Eyrinnar heilsuræktar ehf.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Stjórnanda íþróttamála falið að kynna útfærslu breytinga fyrir notendum þjónustunnar.
-
5. Íbúakönnun 2024
Mál 2410015 Allur ferill málsins
Fjallað um viðhorfskönnun Gallup þar sem mæld eru viðhorf íbúa til þjónustuþátta stærstu sveitarfélaga landsins.
Bæjarráð samþykkir að gerð verði viðhorfskönnun.
-
6. Styrkumsókn vegna afnota af íþróttahúsi Reyðarfjarðar vegna árshátíðar starfsmanna.
Mál 2409067 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Skemmtifélags starfsmanna Fjarðabyggðar um endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsi Fjarðabyggðar þann 10. maí 2025.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur húsaleigu vegna viðburðarins, tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
7. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Mál 2401142 Allur ferill málsins
Fundargerð 952. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
8. Ársskýrsla Fiskeldissjóðs fyrir árið 2023
Mál 2409263 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar ársskýrsla Fiskeldissjóðs fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun.
Mikilvægt er að útdeiling tekna af gjaldtöku í fiskeldi í sjó renni til sveitarfélaga þar sem nýting auðlindarinnar og starfsemi fyrirtækja í fiskeldi fari fram og þörfin til uppbyggingar þjónustu sé mest. Við setningu laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð var lögð áhersla á að hlutverk sjóðsins væri að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.
Skorað er á Matvælaráðherra að endurskoða útdeilingar sjóðsins með það fyrir augum að leggja Fiskeldissjóð niður. Tekjur vegna gjaldtöku fiskeldis í sjó og ætlað er til innviðauppbyggingar í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað ætti að renna beint til sveitarfélaga án aðkomu Fiskeldissjóðs miðað við lífmassa, burðarþol- eða áhættumat fjarða.
-
9. Ferðaþjónustudagurinn 2024
Mál 2410029 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar boð á ferðaþjónustudaginn 7. október nk.
-
10. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Mál 2403087 Allur ferill málsins
Fundargerð 76. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
11. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025
Mál 2404224 Allur ferill málsins
Fjallað um starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokka bæjarráðs.
Slökkviliðsstjóri fór yfir gerð fjárhagsáætlunar slökkviliðsins fyrir árið 2025 og stöðu slökkviliðsins.
-
12. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025
Mál 2404220 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlunargerð hafnarinnar.
Farið yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 og stöðu Fjarðabyggðarhafna.
-
13. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Mál 2404222 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlunargerð fjölskyldusviðs.
Farið yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 og stöðu fjölskyldusviðs.
-
14. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025
Mál 2404221 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlunargerð skipulags- og framkvæmdanefndar.
Farið yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 og stöðu skipulags- og framkvæmdasviðs.
-
15. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025
Mál 2404223 Allur ferill málsins
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlunargerð menningarmála.
Farið yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025 og stöðu menningarmála.
-
16. Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 3
Framlögð til afgreiðslu fundargerð rýnihóps um breytingar í grunnskólum frá 3. október.
Fundargerð staðfest.
-
17. Starfshópur um breytingar í leikskólum - 3
Framlögð til afgreiðslu fundargerð starfshóps um breytingar í leikskólum frá 24. september.
Fundargerð staðfest.