Sorphirða - Tæming íláta
Mál 2309094 Fyrst á dagskrá 16. september 2024, síðast 19. september 2024. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Umhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2024
Bæjarráð, fundur 863 liður 11
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir áhyggjum vegna ítrekaðra raskana á áætlun um sorphirðu af hálfu verktaka. Þessar truflanir hafa valdið óþægindum fyrir íbúa og skapað óásættanlegt ástand varðandi sorphirðu í sveitarfélaginu. Bæjarráð leggur ríka áherslu á að sorphirða gangi snurðulaust fyrir sig og að verktaki uppfylli þær skyldur sem samningur kveður á um.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka tafarlaust upp viðræður við verktaka með það að markmiði að leysa vandann án frekari tafa og tryggja að sorphirða fari fram samkvæmt gildandi áætlun. Viðræður skulu beinast að því að finna raunhæfar lausnir og úrbætur svo að slíkar truflanir endurtaki sig ekki.
Bæjarráð mun fylgjast náið með framvindu mála og kalla eftir reglulegum upplýsingum um stöðu úrbóta.
-
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 2.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 863“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.