Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 6

12. júní 2024, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 853 liður 25

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 12. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 379 liður 6

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 12. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025

    Mál 2404223 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur stjórnarinnar til bæjarráðs varðandi fjárhagsramma ársins 2025.

    Stjórn felur bæjarritara að forma þær og leggja fyrir bæjarráð.

  2. 2. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024

    Mál 2402237 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstur safnanna sumarið 2024.

  3. 3. Verkefni menningarstofu 2024

    Mál 2401039 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður fór yfir undirbúning, skipulagningu og dagskrá menningar- og listahátíðarinnar Innsævis sem hefst um helgina og stendur í sumar.

    Stjórn fagnar veglegri dagskrá menningar og listahátíðarinnar og hvetur íbúa til þátttöku í henni og njóta lista.

  4. 4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Rætt um nýtingu á styrk frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands en Fjarðabyggð var veittur styrkur að fjárhæð 700 þ.kr.

    Stjórn fagnar styrkveitingunni og hann verði nýttur til frumhönnunar lóðarinnar og tillögur síðan lagðar fyrir stjórn.