Hafnarstjórn, fundur 315
2. september 2024, kl. 16:00 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 862 liður 16
Framlög til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 2. september.
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 5
Fundargerð 315. fundar hafnarstjórnar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Mál 2305073 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda í samhengi við fjárfestingaáætlun ársins.
-
2. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Farið yfir málin varðandi framkvæmdir við Frystihússbryggjuna á Eskifirði. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar og frekari útfærslu.
-
3. Úttekt Samgöngustofu 2024
Mál 2408142 Allur ferill málsins
Samgöngustofa gerði úttekt í Fjarðabyggðarhöfnum í sumar. Farið yfir málin varðandi hafnarvernd. Hafnarstjórn felur starfsmönnum Fjarðabyggðarhafna að framfylgja úrbótaáætlun sem skilað hefur verið til Samgöngustofu og vera í samskiptum við Samgöngustofu í tengslum við það.
-
4. Öryggismál hafna
Mál 2206100 Allur ferill málsins
Farið yfir það sem framundan er í úrbótum öryggismála á Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að vinna áfram að úrbótum á öryggismálum hafna Fjarðabyggðar.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025
Mál 2404220 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2025. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna að útfærslu fjárhagsáætlunar á grundvelli umræðna á fundinum og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
6. Ósk um olíuafgreiðslu á Reyðarfjarðarhöfn
Mál 2408150 Allur ferill málsins
Lögð fram ósk N1 um olíuafgreiðslu á Reyðarfjarðarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir að N1 fái heimild til að skoða útfærslur á staðsetningu í samræmi við aðra olíuafgreiðslu á höfninni.
-
7. Ósk um olíuafgreiðslu fyrir vinnuvélar á Eskifjarðarhöfn
Mál 2408149 Allur ferill málsins
Lögð fram ósk N1 um uppsetningu dælu til afgreiðslu olíu á vinnuvélar úr tanki fyrirtækisins á Eskifjarðarhöfn. Ekki er hægt að verða við erindinu og felur hafnarstjórn verkefnastjóra hafna að svara N1.
-
8. Drög að breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla - Umsagnarferli
Mál 2407085 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til hafnarstjórnar umsögn vegna draga að breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla sem liggur í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til 15.ágúst næstkomandi. Bæjarráð fól hafnarstjóra í samráði við hafnarstjórn að yfirfara drögin og veita umsögn vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkir umsögn.
-
9. Umsókn vegna endurnýjunar hafnsögumannsskírteinis
Mál 2406086 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn vegna umsóknar Árna Bergþórs Kjartanssonar um endurnýjun hafnsögumannsskírteinis í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn samþykkir umsögnina.
-
10. Styrkumsókn - Útsæði 2024
Mál 2407013 Allur ferill málsins
Lögð fram styrkumsókn frá Útsæði - bæjarhátíð á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir hefðbundinn styrk.
-
11. Umsókn um styrk vegna Neistaflugs 2024
Mál 2407071 Allur ferill málsins
Framlögð styrkbeiðni vegna bæjarhátíðarinnar Neistaflugs 2024. Hafnarstjórn samþykkir hefðbundinn styrk.
-
12. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024
Mál 2402027 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 464. fundar Hafnasambands Íslands