Bæjarráð, fundur 841
4. apríl 2024, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 375 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Elís Pétur Elísson.
Fundargerð bæjarráðs frá 4. apríl utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Viðtalstímar
Mál 2301072 Allur ferill málsins
Farið yfir skipulags viðtalstíma bæjarstjóra, formanns bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að viðtalstímar verði reglubundnir alla jafna síðasta miðvikudag hvers mánaðar frá kl. 16:00 til 18:00 og þeir fara á milli byggðakjarna. Aðrir kjörnir fulltrúar taka þátt eftir því færi gefst.
Viðtalstímar næstu mánaða verða 24. apríl á Stöðvarfirði, 29. maí á Fáskrúðsfirði og 26. júní Norðfirði. Viðtalstímarnir verða í grunnskólum. Fundir að hausti verða auglýstir sérstaklega í lok sumars.
-
2. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2024
Mál 2403226 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð ársfundar Starfsendurhæfingar Austurlands fyrir árið 2024 sem haldinn verður á Egilsstöðum 10. apríl nk. kl 11:30.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra fjölskyldusviðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.
-
3. Tjaldsvæðið Stöðvarfirði
Mál 2403203 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju erindi frá Atlas Lögmönnum ehf. um lóðamál tjaldsvæðis á Stöðvarfirði.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi lögmannsins með vísan til fundar formanns með bréfritara.
-
4. Fab Lab Austurland
Mál 2403249 Allur ferill málsins
Framlögð drög að endurnýjuðum samningi um Fab Lab Austurland milli Verkmenntaskóla Austurlands, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytisins, mennta- og barnamálaráðuneytisins og Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
5. Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir
Mál 2403283 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá verkefninu Saman gegn sóun en boðað er til opins fundar á Egilsstöðum mánudaginn 22. apríl kl. 13:00.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar.
-
6. Skipulags- og framkvæmdasvið verkefni 2024
Mál 2403234 Allur ferill málsins
Tekin umræða um verkefni skipulags- og framkvæmdasviðs.
-
7. Fjölskyldusvið verkefni 2024
Mál 2404009 Allur ferill málsins
Tekin umræða um verkefni fjölskyldusviðs.