Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2024

Suðurfjarðavegur - framkvæmdir

Mál 2404058 Fyrst á dagskrá 8. apríl 2024, síðast 11. apríl 2024. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 11. apríl 2024, frá 0:31:16 og 1 kafli til viðbótar í ferlinum

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2024

    Bæjarráð, fundur 842 liður 7

    Framlögð bókun bæjarráðs um Suðurfjarðaveg.

    Fjarðabyggð skorar á umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að flýta framkvæmdum við Suðurfjarðaveg með því að endurskoða forgangsröðun í framlagðri samgönguáætlun sem er til meðferðar á nefndarsviði Alþingis.

    Lesa alla bókunina (316 orð til viðbótar)

    Fjarðabyggð krefst þess að lokið verði verkhönnun allra áfanga Suðurfjarðavegar á árinu 2024 þannig að þeir verði tilbúnir til útboðs. Mörg alvarleg slys hafa orðið á veginum á undanförnum árum enda eru margir hlutar hans hættulegir samkvæmt alþjóðlegum umferðarstöðlum með fjölmörgum blindhæðum, hlykkjum og einbreiðum brúm sem standast ekki þungatakmarkanir. Ört vaxandi umferðarþungi flutninga, ferðamanna sem og annarra ökumanna kallar á tafarlausar úrbætur.

    Fjarðabyggð leggur þunga áherslu á að framkvæmdum í Reyðarfjarðarbotni verði lokið ekki seinna en í árslok 2025 enda tenging atvinnulífs Suðurfjarða við eina stærstu vöruflutningahöfn landsins á Mjóeyrarhöfn. Brúin yfir Sléttuá er umferðarþyngsta einbreiða brú á Austurlandi og er jafnframt ein elsta brúin á hringveginum í dag. Brúin ber ekki þungavinnuvélar sem hefur ollið vandræðum í uppbyggingu atvinnusvæða í Fjarðabyggð en ferðast þarf með þungavinnuvélar yfir Sléttuá á vaði með tilheyrandi kostnaði, töfum og raski á umhverfinu. Í beinu framhaldi af þeim framkvæmdum þarf að hefja endurgerð annarra vegkafla og brúa á Suðurfjarðavegi enda hafa ekki átt sér stað neinar endurbætur á honum frá því lagt var bundið slitlag á gamlan ófullnægjandi veg fyrir um 35 árum síðan.

    Verðmætasköpun í Fjarðabyggð er hlutfallslega stór hluti hagkerfisins og útflutningsatvinnuvegir þess afla verulegra gjaldeyristekna fyrir þjóðarbúið. Samgöngur eru undirstaða kraftmikillar uppbyggingar atvinnulífsins sem kallar jafnframt á stóraukna umferð á svæðinu, m.a. vegna skóla-, þjónustu- og atvinnusóknar sem hluta af eðlilegum lífsgæðum og þjónustuaðgengis. Mikið er um flutning á afurðum og vörum til og frá höfnum svæðisins og á milli fyrirtækja vegna álframleiðslu, sjávarútvegs og laxeldis svo dæmi séu nefnd. Fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu sem byggir á öruggum og greiðum samgöngum eru tafir á úrbótum veruleg hindrun.

    Það er ljóst að íbúar og samfélagið í Fjarðabyggð er að leggja sitt af mörkum til þjóðarbúsins en miðað við fyrirliggjandi drög að samgönguáætlun þá eru ekki gert ráð fyrir nýframkvæmdum innan sveitarfélagsins fyrr en á síðari hluta fyrsta tímabils. Þetta er óásættanleg staða fyrir íbúa og atvinnulíf sveitarfélagsins.

  2. Bæjarstjórn, fundur 375 liður 3.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 842“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 375. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:31:16 við höfum verið að vinna eftir og er bara góð framvinda í en við erum einnig með í sjónmáli tækifæri til þess að horfa til annarra verkefna í uppbyggingu ferðamannastaða og þar er hægt að nefna gerpisvæðið og eins hér hólmannes sem að mikil tækifær eru í og eins stríðsárasafni sem hefur verið hér til umræðu undanförnum fundum nú sofandi lið þrír sjö þá vorum við þar með bókun
    • 0:31:44 þar með bókun varðandi málefni suðurfjarðarvegar og þar er auðvitað samgönguáætlunin undir hún er til umræðu núna inn í umhverfis og samgöngunefnd alþingis og þau eru að fara yfir núna samgönguárana þannig að okkur fannst þetta gott tilefni til þess að fara yfur okkar áherslur brýnaðu aðeins og hvetjaðu til dáða til þess a að horfa hér
    • 0:32:12 dáða til þess að horfa hér til mjög dapur ástand suðurfjarðarvegar og einkum það sem snýr hér að sléttuárbrúnni sem er svona farin að há okkur hvað mest auðvitað eru aðrar einbreiðabrýr undir en þær þunga takmarkanir og ástand brúarinnar er orðið með þeim hætti að það er mjög mikilvægt að okkar þingmenn
    • 0:32:40 það er mjög mikilvægt að okkar þingmenn geri sér grein fyrir því og átti sig á mikilvægi þess að að flýta hér framkvæmdum og leiddi þá leiða til þess að forgangsvaða samgönguáætlun með öðrum hætti en nú er gert en það fer augum að að við náum að fá brúarframkvæmdir hér á næsta ári og það er bara mjög mikillegt að við öll tökum þessa bókuna áfram og
    • 0:33:08 og höldum áfram að þrýsta á þingmenn að að horfa til þess að hér þarf að gera bragarbót á

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 375. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:35:56 gegnir veigamiklu hlutverki í okkar samfélagi og hefur alltaf verið hér hjá okkur þverpólitískt sátt um að standa þétt í bakið á verkmannsskólanum og sé það alls ekkert breytast og hérna hefur það alltaf veri það hvernig hefur rættuskólann gríðarlega mikilvægt að hann haldi sínum stað og sínum sess hér hjá okkar aðeins svo inn á lið þrjú sjö varðandi bókum samgönguáð
    • 0:36:24 varðandi bókum samgönguáætlun ég tek heils hugar undir það sem kom hérna fram áðan í máli ragnars varðandi þessa bókun auðvitað er þetta góð tímasetning til að halda áform þessari vinnu og þessum þrýstingi sem við höfum verið að beita með okkar umsóknum um samgönguárætlun og það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að við göngum öll í takti í þessu máli sem og ég tali okkur vera að gera því að það er til mikils að vinna fyrir okkur hér á þessu svæði við þekkjum öll þessar bara hvernig ástand er á augunum hér og hér og hérna gríðar
    • 0:36:52 en ástandið er á vegunum hér og hérna gríðarlega mikilvægt að þessu verður fylgt eftir og hérna ég held að við getum öll tekið undir það og séum alveg sammála því að það sé mikilvægt ef við göngum í takt í þessum málum og þrýstum á þar sem við getum og hérna höldum okkar svona rökum uppi á lofti og hérna náum við sér gegn sem fyrst meira var ekki frá meirabil bekka
    • 0:37:20 elís pétur elísson við bæjarstjórn og ari kjörnir fulltrúar ég vil vekja athygli á bókum sem fram kemur í fundargerð bæjarráðs áttantur fjörutíu og tvö lið þrjú sjö og taka undir mér ragnar og stefáni sem hér töluðu áðan það er gríðarlegt hagsmuna og öryggismál fyrir íbúa fjarðabyggðar að flýta framkvæmdir við botns reyðarfjarðar og uppbyggingu suðurfjarðarvegar
    • 0:37:48 uppbyggingu suðurfjarðarvegar þar sem þetta er fjölfarin vegur og tengir saman atvinnusvæðinu fjarðabíð ég vil fagna því að þessi bókun sé hér komin fram frá bæjarráði og óska þess að hún nái í eyrum þar tilbærra samgöngu yfirvalda það er mikilvægt að það sé flýtt eins og mögulegt er