Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 307

5. febrúar 2024, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Ingi Steinn Freysteinsson, varamaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 833 liður 16

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 5. febrúar

  • Bæjarstjórn, fundur 370 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 5. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2312117 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða og greining þjónustuþátta í starfsemi Fjarðabyggðarhafna.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024

    Mál 2305073 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda við Fjarðabyggðarhafnir

  3. 3. Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað

    Mál 2210158 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Guðröði Hákonarsyni, fyrir hönd Hildibrand slf. varðandi frágang við sjóvarnargarð. Verkefnastjóra hafna er falið að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.

  4. 4. Skemmtiferðaskip í Fjarðabyggðarhöfnum

    Mál 2205243 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur frá Gáru. Fyrirtækið, sem er umboðsaðili fjölda skemmtiferðaskipa á Íslandi, kallar eftir upplýsingum vegna bókana skemmtiferðaskipa í Fjarðabyggðarhöfnum. Verkefnastjóra hafna falið að kalla eftir upplýsingum og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  5. 5. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála varðandi Grænan orkugarð á Reyðarfirði

  6. 6. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju

    Mál 2401204 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.

  7. 7. Hafnasambandsþing 2024

    Mál 2401111 Allur ferill málsins

    Hafnasamband Íslands hefur boðað til hafnasambandsþings þann 24.-25. október næstkomandi.

  8. 8. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024

    Mál 2402027 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 460. fundar Hafnasambands Íslands