Ungmennaráð, fundur 10
13. desember 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Eyrún Inga Gunnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (13)
Fundinn sátu
- Elín Eik Guðjónsdóttir, aðalmaður
- Margarette B. Sveinbjörnsdóttir, aðalmaður
- Tinna Rut Hjartardóttir, aðalmaður
- Emilía Björk Ulathowska, aðalmaður
- Pálína Hrönn Garðarsdóttir, aðalmaður
- Katrín María Jónsdóttir, aðalmaður
- Unna Dís Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Eyvör Rán Ívarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Eyrún Inga Gunnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Guðmunda Erlendsdóttir, embættismaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 834 liður 12
Fundargerð ungmennaráðs frá 13. desember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað
Mál 2310191 Allur ferill málsins
Ungmennaráð leggur til að umhverfis- og skipulagsnefnd íhugi fyrri staðsetningu betur. Ráðið telur að gangbraut nýtist betur neðar í götunni (sjá minnisblað). Nemendur á heimavist munu líklega ekki taka sér krók til þess að nýta sér gangbraut ofar.
-
2. Starfshópur vegna íþróttamannvirkja
Mál 2303018 Allur ferill málsins
Ungmennaráð skilar niðurstöðum sínum til deildarstjóra tómstunda og forvarnamála sem kemur þeim áfram á starfshópinn. Ungmennaráð óskar eftir því að vera kölluð inná fund starfshópsins.
-
3. Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
Mál 2312028 Allur ferill málsins
Deildarstjóri tómstunda- og forvarnamála kynnir fyrir ungmennaráði nýjar áherslur í forvörnum fyrir árin 2024-2026. Ungmennaráð þakkar fyrir kynninguna og samþykkir þessar áherslur.
-
4. Erindi til ungmennaráðs: v. gangbrautar yfir Austurveg á Reyðarfirði
Mál 2312048 Allur ferill málsins
Ungmennaráð tekur undir með yfirþroskaþjálfa Grunnskóla Reyðarfjarðar. Meðfylgjandi eru myndir af gatnamótum og önnur hugmynd af staðsetningu, unnin í sammráði við yfirþroskaþjálfa. Ungmennaráð vísar erindinu til umhverfis- og skipulagsnefndar.