Ungmennaráð, fundur 11
7. febrúar 2024, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Eyrún Inga Gunnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Elín Eik Guðjónsdóttir, aðalmaður
- Margarette B. Sveinbjörnsdóttir, aðalmaður
- Tinna Rut Hjartardóttir, aðalmaður
- Emilía Björk Ulathowska, aðalmaður
- Pálína Hrönn Garðarsdóttir, aðalmaður
- Katrín María Jónsdóttir, aðalmaður
- Unna Dís Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Eyvör Rán Ívarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Eyrún Inga Gunnarsdóttir, embættismaður
Dagskrá
-
1. Erindi til ungmennaráðs: v. gangbrautar yfir Austurveg á Reyðarfirði
Mál 2312048 Allur ferill málsins
Ungmennaráð fagnar niðurstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar og þakkar fyrir skjót viðbrögð.
-
2. Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar
Mál 1806053 Allur ferill málsins
Farið var yfir reglur um notkun snjalltækja nemenda í grunnskólum Fjarðabyggðar með ungmennaráði. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu er falið að vinna málið áfram fyrir næsta fund fræðslunefndar.
-
3. Skólamáltíðir grunnskóla
Mál 2210173 Allur ferill málsins
Rætt var um tilhögun skólamáltíða í grunnskólum Fjarðabyggðar og kerfið í kringum þær. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu er falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund.