Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 826

11. desember 2023, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 365 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 825 og 826 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók:Stefán Þór Eysteinsson

    Fundargerð 826. fundar bæjarráðs frá 11. desember er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023

    Mál 2205294 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga Framsóknarflokks og Fjarðalista að breytingum á 62. gr. samþykktar auk viðauka um stjórn og fundarsköp Fjarðabyggðar nr. 252/2022 með síðari breytingum. Bæjarráð samþykkir breytinguna og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, situr hjá við afgreiðsluna.

  2. 2. Erindisbréf fjölskyldunefndar

    Mál 2312054 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að nýju erindisbréfi fjölskyldunefndar með vísan til tillögu að breytingum á nefndum sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir breytingu á erindsbréfinu og vísar því til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, situr hjá við afgreiðsluna.

  3. 3. Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar

    Mál 2312053 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að nýju erindisbréfi skipulags- og framkvæmdanefndar með vísan til tillögu að breytingum á nefndum sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir breytingu á erindsbréfinu og vísar því til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, situr hjá við afgreiðsluna.

  4. 4. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2023

    Mál 2311139 Allur ferill málsins

    Lántaka hjá Ofanflóðasjóði. Gert er ráð fyrir samþykki fyrir lántökunni hjá Ofanflóðasjóði berist í vikunni. Fyrir liggur minnisblað fjármálastjóra varðandi lántökuna. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti lántökuna og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

  5. 5. Málefni fjölskyldusviðs

    Mál 2303095 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs mætti á fundinn og fór yfir stöðu mála á sviðinu.

    Starfshópi um rekstur íþróttamannvirkja er veittur frestur til 25. janúar 2024 til að skila niðurstöðum.

  6. 6. Starfshópur fræðslumála 2023

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs, fræðslustjóri og formaður starfshóps um fræðslumál koma á fundinn og fara yfir stöðu mála við vinnu starfshóps um fræðslumál.

    Starfshópurinn hefur tekið saman talsvert magn af upplýsingum og sett upp drög af sviðsmyndum. Bæjarráð þakkar fyrir vinnuna sem unnin hefur verið. Nú hefst vinna við stefnumótun á grundvelli þessara gagna og verður uppfært erindsbréfi hópsins lagt fyrir á næsta fundi bæjarráðs, ásamt tilnefningum í hann að nýju. Í framhaldi af vinnu þess hóps verður farið í samráð.

  7. 7. Málefni framkvæmda- og umhverfissviðs 2023

    Mál 2312049 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs mætir á fundinn og fer yfir stöðu mála á sviðinu.

    Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina.

  8. 8. Úthlutun byggðakvóta 2023 og 2024

    Mál 2312006 Allur ferill málsins

    Lögð til úthlutun á byggðkvóta til Fjarðabyggðar fyrir fiskveiðiárið 2023 og 2024. Á síðasta fiskveiðiári voru engar sérreglur í gildi varðandi úthlutun byggðakvóta. Bæjarráð samþykkir að ekki verði óskað eftir sérreglum varðandi úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2023 - 2024.

  9. 9. Íbúafundir í janúar 2024

    Mál 2312011 Allur ferill málsins

    Umræða um íbúafundi í janúar 2024 og undirbúning þeirra.

    Gert er ráð fyrir að fundirnir verði allir haldnir í húsnæði grunnskólanna á hverjum stað og hefjist þeir allir kl. 20:00.

    Dagsetningar verða sem hér segir:

    Breiðdalsvík - 15. janúar

    Stöðvarfjörður - 16. janúar

    Reyðarfjörður - 17. janúar

    Eskifjörður - 18. janúar

    Norðfjörður - 22. janúar

    Fáskrúðsfjörður - 23. janúar

    Fundur verður haldinn í Mjóafirði í samráði við íbúa.

  10. 10. Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands 2023

    Mál 2312063 Allur ferill málsins

    Á fundi stjórnar Náttúrustofu Austurlands þann 7. desember slsl. var athygli vakin á því að samningur Fjarðabyggðar og Múlaþings við umhverfisráðuneytið varðandi rekstur Náttúrustofunar rennur út um áramót. Bæjarstjóra falið að ræða við hlutaðeigandi vegna samningagerðar.

  11. 11. Erindi vegna gjaldfrjálsra afnota af eldhúsi grunnskólans á Stöðvarfirði

    Mál 2312050 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Kimi Tayler um gjaldfrjáls afnot af eldhúsi grunnskólans á Stöðvarfirði. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að skoða erindið með hlutaðeigandi aðilum á grundvelli verkefnisins Brothættar byggðir

  12. 12. Aðgerðerðaáætlun í kjölfar haustþings SSA

    Mál 2312047 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynngar bréf frá stjórn SSA vegna aðgerðaráætlunar sem unnin var upp úr ályktunum haustþings SSA 2023. Bæjarstjóra falið fara yfir verkefnin og vísa þeim til umfjöllunar í viðeigandi nefndum sveitarfélagsins.

  13. 13. Frumvarp til laga um lagareldi

    Mál 2312045 Allur ferill málsins

    Matvælaráðuneytið hefur með töluvpósti kynnt til samráðs mál nr. 253/2023 - „Frumvarp til laga um lagareldi“. Umsagnarfrestur er til og með 03.01.2024. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

  14. 14. Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg

    Mál 2312056 Allur ferill málsins

    Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að tillögu til þingsályktunar um sjávarútvegsstefnu, drög að frumvarpi til laga um sjávarútveg og tillögur um útfærslu á innviðaleið. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

  15. 15. Samningur við Orkusöluna fyrir skerðanlegt rafmagn

    Mál 2312061 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi við Orkusöluna fyrir skerðanlegt rafmagn til húshitunar. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  16. 16. Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna

    Mál 2311229 Allur ferill málsins

    Fundargerðir starfshóps um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna nr. 1 og nr.2 lagðar fram til kynningar.

  17. 17. Erindi frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð - desember 2023

    Mál 2312020 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar erindi frá forstöðumönnum bókasafnanna í Fjarðabyggð frá 1. desember 2023.

  18. 18. Jafnlaunastefna endurskoðun

    Mál 2102122 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðaðri jafnlaunastefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði. Bæjarráð samþykkir drögin og vísar jafnlaunastefnunni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  19. 19. Umsókn um lóð Bakkagerði 11

    Mál 2311147 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðaumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar um lóðina að Bakkagerði 11 á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt að úthluta lóðina og vísar úthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  20. 20. Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk

    Mál 2311181 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðaumsókn Heimis Snæs Gylfasonar vegna lóðarinnar að Strandgötu 12 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt að úthluta lóðinni og vísar úthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  21. 21. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023

    Mál 2301183 Allur ferill málsins

    Fundargerð 939. fundar stjórnar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  22. 22. Jólasjóður 2023

    Mál 2312057 Allur ferill málsins

    Minnisblað lagt fram frá stjórnanda félagsþjónustu með tillögu að greiðslu styrks í jólasjóð Fjarðabyggðar vegna úthlutunar úr sjóðnum í desember 2023. Bæjarráð samþykkir styrk í jólasjóðinn að upphæð 500.000 kr.

  23. 23. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar.

    1. 23.1 Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva2312027
    2. 23.2 Umsókn um lóð Bakkagerði 112302021
    3. 23.3 Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk2312135
    4. 23.4 Umsókn um lóð Nesgata 342312136
    5. 23.5 Umsókn um lóð Hlíðargata 7-9, Fásk2301094
    6. 23.6 Framkvæmdaleyfi bryggja við minningarreit SVN í Neskaupstað2312132
    7. 23.7 Stækkun lóða við Hjallaleiru2312048
    8. 23.8 Uppbygging Suðurfjarðarvegar.2310191
    9. 23.9 Kostnaður og tekjur sveitarfélaga af úrgangsmálum2401032
    10. 23.10 Fjallskilanefnd - 52401056
    11. 23.11 Sólbakki 2 lokun götu og byggingareitir bílskúrar
  24. 24. Hafnarstjórn - 305

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar lögð fram til staðfestingar

    1. 24.1 Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat2009216
    2. 24.2 Beiðni um nýja flotbryggju2204049
    3. 24.3 Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð2310174
    4. 24.4 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20232311220
    5. 24.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196
  25. 25. Fjallskilanefnd - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 5. fundar fjallskilanefndar lögð fram til staðfestingar

    1. 25.1 Erindi til sveitarfélaga frá Bændasamtökum Íslands lausagangaágangur búfjár2307039
    2. 25.2 Fjallskil og gangnaboð 20232307003
    3. 25.3 Styrkur til garnaveikiólusetningar í Fjarðabyggð2311092
    4. 25.4 Úrgangsmál, dýrahræ og alm. úrgangur í dreifbýli2207099
    5. 25.5 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2306063