Bæjarráð, fundur 825
4. desember 2023, kl. 08:30 til 10:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 365 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 825 og 826 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson
Fundargerð 825. fundar bæjarráðs frá 4. desember er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Tjaldsvæði 2022
Mál 2203199 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra varðandi sölu tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsfulltrúa er falið að fara í nauðsynlega skipulagsvinnu varðandi málið, og samhliða því verði stjórnsýslu- og þjónustusviði falið að gera drög að auglýsingu svæðanna.
-
2. Viljayfirlýsing HÍ og Hallormsstaðaskóla um uppbyggingu Háskólanáms
Mál 2311225 Allur ferill málsins
Formaður stjórnar Hallormsstaðaskóla kynnti nýgert samkomulag Hallormsstaðaskóla og Háskóla Íslands varðandi uppbyggingu háskólanáms við Hallormsstaðaskóla. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar áformum um nám á háskólastigi í Skapandi sjálfbærni við Hallormsstaðaskóla.
-
3. Íbúafundir í janúar 2024
Mál 2312011 Allur ferill málsins
Í janúar 2024 verða haldnir íbúafundir í byggðakjörnum Fjarðabyggðar, dagsetningar fundanna verða auglýstar í næstu viku. Bæjarstjóra falið að halda áfram vinnu við undirbúning fundanna.
-
4. Frágangur á Haga
Mál 2210016 Allur ferill málsins
Umræða um frágang við Haga á Reyðarfirði þar sem starfsmannaþorp Alcoa stóð. Frágangur á svæðinu verði tekið upp með forsvarsmönnum Alcoa.
-
5. Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - í samráðsgátt
Mál 2303120 Allur ferill málsins
Umræða um breytingar sem boðaðar hafa verið á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Bæjarstjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir fulltrúa í bæjarráði.
-
6. Til umsagnar 509. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Mál 2311193 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis hefur sent til umsagnar mál nr. 509 "Húsnæðisstefna fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028."
Framlagt og kynnt.
-
7. Til umsagnar 82. mál "Uppbygging Suðurfjarðarvegar".
Mál 2311197 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd hefur sent til umsagnar mál nr. 82 "Uppbygging Suðurfjarðarvegar".
Bæjarráð vísar í umsögn sína um samgönguáætlun og felur bæjarstjóra að senda hana aftur inn til nefndarinnar varðandi þetta mál.
-
8. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 938. fundar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
9. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
Mál 2302093 Allur ferill málsins
Fundargerð 65. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar
-
10. Fundargerðir stjórnar Austurbrúar
Mál 2311224 Allur ferill málsins
Fundargerð 144. fundar stjórnar Austurbrúar lögð fram til kynningar.
-
11. Fundargerðir stjórnar SSA
Mál 2311224 Allur ferill málsins
Fundargerð 15. fundar stjórnar SSA lögð fram til kynningar