Bæjarráð, fundur 192
30. mars 2010, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Aukning á stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar
Mál 2008-11-21-1815 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að nýju samkomulagi vegna stofnfjárframlags Fjarðabyggðar til Sparisjóðs Norðfjarðar sem fjármálastjóri hefur yfirfarið. Bæjarráð felur bæjarstýru að ganga frá samkomulagi<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
2. Rökstuðningur vegna ráðninga í störf hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar
Mál 1003084 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat slökkviliðsstjóri. Farið var yfir rökstuðning slökkviliðsstjóra og verklag vegna ráðninga í störf hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar. Bæjarráð er sátt við málsmeðferð og ráðningarferil Slökkviliðs Fjarðabyggðar.
-
3. Úrsögn úr undirkjörstjórn í Neskaupstað
Mál 1003083 Allur ferill málsins
Þorvarður Sigurbjörnsson er tilnefndur af Fjarðalista sem varamaður í undirkjörstjórn í Neskaupstað í stað Auðar Hauksdóttur .
-
4. Edduborgarreiturinn Eskifirði - umgengni
Mál 0909044 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað byggingarfulltrúa frá 22.mars.
-
5. Lóðin að Fossgötu 3 Eskifirði
Mál 1003113 Allur ferill málsins
Erindi Einars Birgis Kristjánssonar frá 23.mars þar sem lóðin að Fossgötu 3 er boðin Fjarðabyggð til kaups. Framlagt minnisblað byggingarfulltrúa frá 29.mars. Bæjarráð vísar máli til umhverfis- og skipulagsnefndar með ósk um afstöðu og framtíðarsýn nefndarinnar vegna kaupa á eignarlóðum.
-
6. Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar
Mál 1002136 Allur ferill málsins
Ekki hafa borist umbeðin gögn frá rekstsraraðila og málinu frestað þar til þau berast.
-
7. Fundargerð stjórnarfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 18.mars
Mál 1003114 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
8. Breyting á gjaldskrá Safnahússins í Neskaupstað.
Mál 1003092 Allur ferill málsins
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá forstöðumanni Safnastofnunar.
-
9. Heiðarvegur 15, 730 Fjarðabyggð - Tilboð
Mál 1003134 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir 23.000.000 kauptilboð í Heiðarveg 15 Reyðarfirði en tilboðið hefur verið borið undir meirihluta mannvirkjanefndar sem samþykkti tilboðið.
-
10. Útvarpsþáttur um atvinnuleit / atvinnusköpun - Beiðni um styrk
Mál 1003133 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk vegna gerðar útvarpsþáttar um hagsmunamál atvinnulausra. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um beinan fjárhagsstyrk en felur forstöðumanni stjórnsýslu að vera styrkbeiðendum innan handar ef fjallað verður um atvinnumál í Fjarðabyggð.
-
11. Fundargerð félagsmálanefndar nr.30
Mál 1003131 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
12. Fundargerð félagsmálanefndar nr.32
Mál 1003132 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
13. Öldrunarþjónustunefnd - 18
Fundargerð lögð fram.
-
14. Fræðslunefnd - 28
Fundargerð lögð fram.
-
15. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 34
Fundargerð lögð fram.