Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 282

27. febrúar 2012, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 109 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson,  Sævar Guðjónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Óskar Þór Hallgrímsson. Fundargerð bæjarráðs, nr. 282 frá 27.febrúar 2012, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Sláturfélags Austurlands 19.febúar

    Mál 1202002 Allur ferill málsins

    Fram lagður ársreikningur Sláturfélags Austurlands fyrir árið 2011 til kynningar. Bæjarritari gerði grein fyrir aðalfundi.

  2. 2. Heildaryfirlit yfir famlög úr Jöfnunarsjóði 2011

    Mál 1202117 Allur ferill málsins

    Fram lagt yfirlit um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Fjarðabyggðar á árinu 2011.Vísað til fjármálastjóra og til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd og félagsmálanefnd.

  3. 3. Evrópsk viðurkenning til strandbæja

    Mál 1202112 Allur ferill málsins

    Fram lagt yfirlit yfir viðurkenningar til strandbæja sem veittar hafa verið af Evrópuráðinu.Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

  4. 4. Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði

    Mál 1202133 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar vegna lokunar á afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði.Bæjarráð mótmælir harðlega þeim áformum Íslandspósts að loka póstafgreiðslu í Mjóafirði og felur bæjarritar að kanna forsendur ákvörðunar.

  5. 5. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Á fundinn eru mættir frá  Heilbrigðisstofunar Austurlands Einar Rafn Haraldsson forstjóri ásamt Emil Sigurjónssyni mannauðsstjóra.Bókast eftir Einari að hann sé ósáttur við að hann sé sakaður um trúnaðarbrest.Farið yfir málefnið í heild sinni.  Lögð fram tillaga af Einari Rafni Haraldssyni um ráðstefnu á Austurlandi þar sem rædd væri stefna og framtíð í heilbrigðismálum fjórðungsins.Bæjarráð tekur undir tillöguna og felur bæjarstjóra að fylgja henni eftir í samstarfi við forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar.

  6. 6. Samningur um félagsþjónustu við Breiðdalshrepp

    Mál 2006-12-04-2330 Allur ferill málsins

    Lagður fram til staðfestingar samningur Breiðdalshrepps um þjónustu félagsþjónustu Fjarðabyggðar.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að ljúka frágangi samnings og undirrita hann.

  7. 7. Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

    Mál 1202032 Allur ferill málsins

    Farið yfir umsögn sem unnið hefur verið að.  Bæjarráð leggur þunga áherslu á að framkvæmdum við Norðfjarðargöng og Suðurfjarðarveg verði flýtt.  Bæjarráð vísar umsögn til endanlegrar staðfestingar bæjarstjórnar.

  8. 8. Tilfærsla málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga

    Mál 1007146 Allur ferill málsins

    Fram lögð tillaga að viðauka á fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2012 vegna málefna fatlaðs fólks en tekjur hækka.Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands

    Mál 1105180 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar frá 16. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.

  10. 10. Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1105100 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 16. febrúar s.l. lögð fram til kynningar.

  11. 11. Reglur um stuðningsfjölskyldur

    Mál 1105038 Allur ferill málsins

    Nýjar reglur um stuðningsfjölskyldur vegna fatlaðra barna lagðar fram til staðfestingar.Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

  12. 12. Lausarstöður á Framkvæmdarsviði

    Mál 1202137 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri. Farið yfir starfsmannahald á framkvæmdasviði og stöður sem eru að losna.

  13. 13. Samgöngumál í Fjarðabyggð

    Mál 1202141 Allur ferill málsins

    Á fundinn eru mættir fulltrúar Alcoa Fjarðaál, Janne Sigurðsson, Guðmundur Bjarnason og Magnús Þór Ásmundsson.Farið yfir samgöngumál í Fjarðabyggð og rætt um öryggismál m.a. vegna slyss sem varð á veginum milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar.

  14. 14. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012

    Mál 1201123 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 27 frá 13.02.2012 lögð fram til kynningar.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fram lögð og kynnt.

    1. 15.4 735-Deiliskipulag Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli ásamt br. á aðalskipulagi
  16. 16. Atvinnu- og menningarnefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fram lögð og kynnt.