Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 284

12. mars 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 110 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Enginn tók til máls.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.- 23.mars 2012

    Mál 1203025 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins 23. mars n.k.   Bæjarráð tilnefndir Jens Garðar Helgason sem fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfundinn.

  2. 2. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

    Mál 1202154 Allur ferill málsins

    Fram lagt til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga.

  3. 3. Fjarðarferðir 2012

    Mál 1203015 Allur ferill málsins

    Fram lagt til kynningar bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar um ferjusiglingar í Mjóafjörð.Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra sem fundar með Sigfúsi.

  4. 4. Fjarvistastefna

    Mál 1203029 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar drög að fjarvistarstefnu fyrir starfsmenn Fjarðabyggðar.  Bæjarritari kynnti stefnuna.Bæjarráð samþykkir að vísa stefnunni til frekari vinnslu og kynningar hjá stjórnendum sveitarfélagsins.

  5. 5. Forkaupsréttur að lóð nr.4 við Hraun

    Mál 1203024 Allur ferill málsins

    Fram lagt erindi frá Eimskipum hf. þar sem óskað er eftir að hafnarsjóður falli frá forkaupsrétti á eignum á lóð nr. 4 við Hraun en félagið hefur skrifað undir kaupsamning um eignina.Bæjarráð samþykkir að hafnarsjóður nýti ekki forkaupsrétt.  Vísað til hafnarstjórnar til staðfestingar.

  6. 6. Fundarboð um niðurfærslu stofnsjóðs

    Mál 1203028 Allur ferill málsins

    Fram lagt erindi frá Sláturfélagi Austurlands þar sem kynnt er tillaga aðalfundar félagsins um að stofnfé félagsins sé fært niður og inneign í B-stofnsjóði lækki um 76%. Bæjarráð samþykkir tillögur aðalfundarins um lækkun b-stofnsjóðs.

  7. 7. Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði

    Mál 1202133 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá Póst- og fjarskiptastofnunar.  Óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar vegna lokunar póstafgreiðslu Íslandspósts á Mjóafirði. Bæjarráð felur bæjarritara að senda umsögn.

  8. 8. Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins

    Mál 1203020 Allur ferill málsins

    Fram lagðar upplýsingar og tillögur sem nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins hefur lagt fram í skýrslu.  Til kynningar.

  9. 9. Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

    Mál 1202032 Allur ferill málsins

    Fram lagðar til kynningar umsagnir Sambands sveitarfélaga Austurlandi um samgönguáætlun 2011 til 2014 og samgönguáætlun 2011 til 2022.

  10. 10. Umskipunarhöfn á Íslandi

    Mál 1203037 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Guðmundar H Bjarnasonar um siglingaleið yfir Norðurpólinn og umskipunarhöfn á Íslandi.  Er verið að leita eftir aðkomu sveitarfélaga að málinu.Bæjarráð telur ekki tímabært að taka þátt í verkefninu.Bæjarráð vísar jafnframt erindi til umsagnar í atvinnu- og menningarnefnd og hafnarstjórn.

  11. 11. Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu

    Mál 0906022 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Olíudreifingar þar sem sótt er um lóð og athafnasvæði á Reyðarfirði fyrir olíurannsóknir. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umræðu í atvinnu- og menningarnefndar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.

  12. 12. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2010 - 2014

    Mál 1110035 Allur ferill málsins

    Fjarðalistinn (L-listi) gerir eftirfarandi breytingu á skipan í hafnarstjórn: Guðrún Óladóttir tekur sæti Ingólfs Sigfússonar sem varamaður í stjórninni.

    <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  13. 13. Hafnarstjórn - 96

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð frá 6. mars fram lögð til kynningar.

  14. 14. Atvinnu- og menningarnefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð frá 8. mars lögð fram til kynningar.