Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 96

6. mars 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 284 liður 13

    Fundargerð frá 6. mars fram lögð til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 110 liður 5

    Fundargerðir hafnarnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.Enginn tók til málsFundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Hafnarmál á Norðfirði

    Mál 1111028 Allur ferill málsins

    Til fundarins mætir fulltrúi frá Siglingastofnun, Sigurður Áss Grétarsson, til að fara yfir hugmyndir að endurskipulagningu Norðfjarðarhafnar og möguleikum á rýmkun hafnarinnar. Fyrirhugaður er fundur með hagsmunaaðilum í framhaldinu en fundartími verður ákveðinn síðar.  Páll Bj. Guðmundsson yfirgaf fundinn.

  2. 2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012

    Mál 1202146 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 343 dags. 17. febrúar 2012 til kynningar ásamt ársreikningi Hafnasambandsins 2011.

  3. 3. Smábátahafnir Fjarðabyggð

    Mál 0910145 Allur ferill málsins

    Í framhaldi af umræðu um fjölgun viðleguplássa í smábátahöfninni á Stöðvarfirði þá er hægt að bæta við þrem átta metra fingurm við flotbryggjurnar og skapa þannig fleiri pláss og betra aðgengi fyrir fleiri smábáta.  Hafnarstjórn samþykkir að bæta við þrem fingrum.

  4. 4. Smábátahöfn Reyðarfirði

    Mál 1001100 Allur ferill málsins

    Farið yfir teikningar að yfirborðsfrágangi við smábátahöfnina á Reyðarfirði.  Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með útkomuna.