Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 97

26. mars 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 286 liður 10

    Fundargerð nr. 97 frá 26.3.2012 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 111 liður 7

    Fundargerð frá 26. mars 2012 Til máls tóku: Guðmundur Þorgrímsson, Jens Garðar Helgason.Stafðest af bæjarstjórn með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Seatrade Miami 2012

    Mál 1106155 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað vegna ferða á sýninguna Seatrade Miami í mars 2012. Undir þessum lið kom Björn Ingi Knútsson.  Hafnarstjórn samþykkti að óska eftir aðild að Cruise Europe.  Hafnarstjórn stefnir á að kalla saman þær nefndir og ráð sem málið varðar og gera grein fyrir stöðu málsins og næstu skrefum.

  2. 2. Beiðni um undanþágu frá lóðstöku til Mjóeyrarhafnar vegna El Toro.

    Mál 1203076 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskipum dags. 8. mars 2012 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Oleg Granshchikov skipstjóra á El Toro að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsöguskyldu fyrir Oleg Granshchikov skipstjóra á mv. El Toro.

  3. 3. Forkaupsréttur að lóð nr.4 við Hraun

    Mál 1203024 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskipum dags. 7. mars 2012 þar sem félagið óskar eftir að hafnarstjórn Fjarðabyggðar falli frá forkaupsrétti vegna kaupa félagsins á eignum á lóðinni að Hrauni 4, Fjarðabyggð.  Hafnarstjórn samþykkir að falla frá forkaupsrétti við sölu eignanna, en vill að skýrt komi fram að komi til sölu eigna að nýju síðar standi forkaupsréttarheimild hafnarsjóðs virk áfram. Aðeins er verið að taka afstöðu til þessarar sölu að þess sinni.

  4. 4. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Bréf frá Fiskistofu dags. 15. mars 2012. Svar við athugasemdum Fjarðabyggðar vegna rekstarleyfis Laxa ehf fyrir laxeldi í kvíum í Reyðarfirði. Kynnt.

  5. 5. Umskipunarhöfn á Íslandi

    Mál 1203037 Allur ferill málsins

    Erindi frá Guðmundi H. Bjarnasyni dags. 8. mars 2012 vísað til umsagnar hafnarstjórnar frá Bæjarráði 12. mars sl. Í erindinu er óskað eftir kostnaðarþátttöku vegna forvinnu og athugunar á mögulegri staðsetningu umskipunar hafnar í tengslum við Norður-íshafssiglingar á næstu árum. Hafnarstjórn hafnar beiðninni að svo komnu máli.

  6. 6. Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu

    Mál 0906022 Allur ferill málsins

    Bréf frá Olíudreifingu dags. 9.mars 2012 þar sem fyrirtækið óskar eftir samstarfi við Fjarðabyggð um koma upp aðstöðu á Reyðarfirði fyrir þjónustumiðstöð fyrir þau fyrirtæki sem hyggjast stunda olíuleit og vinnslu á olíu á Drekasvæðinu. Jafnframt er óskað eftir að gerð verði viljayfirlýsing vegna þessa samstarfs. Einnig farið yfir kynningu sem Olíudreifing sendi með bréfinu. Málið var tekið fyrir á 284. fundi bæjarráðs og vísað til umræðu í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Atvinnu- og menningarnefnd.Hafnarstjórn tekur vel í erindið og vísar því til bæjarráðs að ganga frá viljayfirlýsingu um málið og að staðið skuli vörð um áherslur hafnarinnar.

  7. 7. Starfsmannamál hafnanna

    Mál 1002012 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir drögum að samkomulagi við Eimskip vegna vöktunarmála við Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir drögin. Hafnarstjórn var upplýst um mál er varðar afleysingu við skipstjórn á dráttarbát og felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.

  8. 8. Þekja frystihúsbryggju Eskifirði

    Mál 1203080 Allur ferill málsins

    Minnisblað frá Siglingastofnun dags. 16. mars 2012 vegna þekju frystihúsbryggjunni á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkti að fara að leiðbeiningum Siglingastofnunar.

  9. 9. Þekja frystihúsbryggju Fáskrúðsfirði

    Mál 1203083 Allur ferill málsins

    Minnisblað frá Siglingastofnun dags. 16. mars 2012 vegna þekju frystihúsbryggjunni á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkti að fara að ráðum Siglingastofnunar í málinu en felur framkvæmdastjóra að skoða með raf- og vatnslagnir.