Bæjarráð, fundur 286
27. mars 2012, kl. 16:30 til 18:00, í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 111 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur knattspyrnudeildar UMF Leiknis
Mál 1203098 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf frá knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Leiknis þar sem skorað er á bæjarstjórn að mismuna ekki íþróttafélögum í sveitarfélaginu með úthlutun styrkja. Bæjarráð óskar eftir að fá formenn Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar og Ungmennafélagsins Leiknis á fund bæjarráðs 10. apríl n.k.Vísað til umræðu í fræðslu- og frístundanefnd.
-
2. Siðareglur
Mál 1201063 Allur ferill málsins
Framlögð drög að siðareglum fyrir kjörn fulltrúa og stjórnendur.Bæjarráð fjallar um reglurnar og vísar afgreiðslu þeirra til næsta fundar.
-
3. Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
Mál 0906022 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, atvinnu- og menningarnefnd ásamt hafnarstjórn hafa tekið vel í erindið. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og vísar til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins
Mál 1203020 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar skýrsla nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
-
5. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Fiskistofa hefur gefið út rekstrarleyfi til Laxa ehf. vegna laxeldis í sjó í Reyðarfirði. Leyfið gildir til 15.mars 2022. Atvinnu- og menningarnefnd lagði til við bæjarráð á fundi 22.mars, að leitað verði allra leiða til að tryggja að uppfyllt verði ákvæði, sem Fjarðabyggð lagði til að sett yrðu í rekstrarleyfi en Fiskistofa hafnaði.Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir athugasemdum sveitarfélagsins og leita leiða til að uppfyllt verði ákvæði þau sem sett voru fram vegna útgáfu rekstrarleyfisins.
-
6. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Mál 1106064 Allur ferill málsins
Atvinnu- og menningarnefnd óskar eftir við bæjarráð að settur verði aukinn kraftur í að laða nýja íbúa til Fjarðabyggðar og leitað verði allra leiða í því sambandi. Framlagðar hugmyndir Andrésar Elíssonar.Bæjarráð tekur vel í hugmyndir Andrésar og felur bæjarstjóra að fylgja þeim eftir við Íbúðalánasjóð. Bæjarráð óskar jafnframt eftir að atvinnu- og menningarnefnd leggi fram hugmyndir sem aukið gæti kraftinn í að laða að nýja íbúa til sveitarfélagsins.
-
7. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
Mál 1202038 Allur ferill málsins
Fram lagt þingskjal nr. 1052, frumvarp til laga um stjórn fiskveiða. Bæjarráð samþykkir að fá álitsgerð frá KPMG-endurskoðun á áhrif frumvarpsins á atvinnulíf í Fjarðabyggð.
-
8. Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 29.mars
Mál 1203065 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Jón Björn Hákonarson sem aðalmann í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar og Valdimar O Hermannsson til vara.
-
9. Atvinnu- og menningarnefnd - 28
Fundargerð fram lögð til kynningar.
-
10. Hafnarstjórn - 97
Fundargerð nr. 97 frá 26.3.2012 lögð fram til kynningar.
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 39