Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 285

19. mars 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 111 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson, Eiður Ragnarsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Norðfjarðarflugvöllur viðhald og uppbygging

    Mál 1203023 Allur ferill málsins

    Á fund bæjarráðs er mættur Ingvar Stefán Árnason og fór hann yfir málefni Norðfjarðarflugvallar.

  2. 2. Skipulagskrá AST (drög)

    Mál 1203043 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá sameinaðri stoð- og þekkingarstofnun Austurlands AST þar sem óskað er eftir því að sveitarfélög gerist stofnaðilar að stofnuninni. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti aðild að stofnuninni og vísar staðfestingunni til bæjarstjórnar til samþykktar.

  3. 3. Skorað á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að laga bílastæði við íþróttavöllinn á Fáskrúðsfirði

    Mál 1203051 Allur ferill málsins

    Lögð fram áskorun frá Ungmennafélaginu Leikni vegna bílastæða við íþróttavöllinn á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð vísar erindi til afgreiðslu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og fræðslu- og frístundanefndar til kynningar.

  4. 4. Þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti - dagur gegn einelti 8. nóv

    Mál 1110157 Allur ferill málsins

    Fram lagður til kynningar þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti í samfélaginu.Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og félagsmálanefndar.

  5. 5. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012

    Mál 1201123 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefnar nr. 28 frá 12. mars 2012 lögð fram til kynningar

  6. 6. Aðalfundarboð Sparisjóðs Norðfjarðar 29.mars

    Mál 1203065 Allur ferill málsins

    Boðað er til aðalfundar Sparisjóðs Norðfjarðar fyrir árið 2011 fimmtudaginn 29. mars 2012 kl. 17:00 Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  7. 7. Ársreikningur Raflagna Austurlands 2010

    Mál 1203048 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Raflagna Austurlands fyrir 2011 lagður fram til kynningar.Vísað til fjármálastjóra.

  8. 8. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Fiskistofu þar sem gerð er grein fyrir afgreiðslu á athugasemdum Fjarðabyggðar vegna útgáfu á rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi Laxa fiskeldis ehf í Reyðarfirði. Ekki er tekið tillit til ábendinga bæjarstjórnar við útgáfu leyfis.Vísað til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn.

  9. 9. 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði

    Mál 1101234 Allur ferill málsins

    Ofanflóðasjóður og Fjarðabyggð boða til opins kynningarfundur vegna varna gegn ofanflóðum í Nýjabæjarlæk á Fáskrúðsfirði kl 20:00 í kvöld 19. mars.

  10. 10. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð

    Mál 1106064 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar tölur yfir þróun íbúa í Fjarðabyggð fyrstu 2 mánuði ársins 2012.  Óverulegar breytingar eru á fjölda íbúa.Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

  11. 11. Aðalfundur Sláturfélags Austurlands 19.febúar

    Mál 1202002 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi b-stofnaðila að Sláturfélagi Austurlands þar sem ákveðið var að niðurfæra stofnfé og auka það.

  12. 12. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012

    Mál 1112080 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð samgöngunefndar SSA nr. 3

  13. 13. Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

    Mál 1202032 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson gerði grein fyrir fundi sem hann og bæjarstjóri sátu með umhverfis- og samgöngunefnd 14. mars s.l.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Í tilefni af umsögn sem Fjarðabyggð veitti við drög að samgönguáætlun Alþingis og fulltrúar sveitarfélagsins fylgdu eftir við umhverfis-og samgöngunefnd Alþingis, á fundi nefndarinnar þann 14.mars sl., ályktar bæjarráð Fjarðabyggðar eftirfarandi:  Það er algjört forgangsmál að flýta gerð Norðfjarðarganga til ársins 2013 á forsendum aukins umferðaröryggis, byggðaþróunar og mikilvægi atvinnusvæðisins fyrir alla þjóðina. Þekkt eru öll þau fjölmörgu rök sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur lagt fram máli þessu til stuðnings  og koma fram í umsögn sveitarfélagsins. Til að tryggðar verði öruggar samgöngur innan sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og m.a. í ljósi umferðaróhapps á Oddsskarði nýlega, þegar hópferðabifreið lenti utan vegar með fjölda farþega, verður ekki lengur beðið með þessa brýnu samgöngubót.

  14. 14. Fræðslu- og frístundanefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Fram lögð til kynningar fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 23 frá 14. mars s.l.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 38

    Fundargerðin í heild

    Fram lögð til kynningar fundargerð einga-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 38 frá 12. mars s.l.

    1. 15.4 Skilgreind hundasvæði í Fjarðabyggð