Tillaga um aðild að AST, nýrri stoð- og þekkingarstofnun á Austurlandi.
Mál 1203043 Fyrst á dagskrá 19. mars 2012, síðast 29. mars 2012. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 285 liður 2
Skipulagskrá AST (drög)
Fram lagt bréf frá sameinaðri stoð- og þekkingarstofnun Austurlands AST þar sem óskað er eftir því að sveitarfélög gerist stofnaðilar að stofnuninni. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti aðild að stofnuninni og vísar staðfestingunni til bæjarstjórnar til samþykktar.
-
Bæjarstjórn, fundur 111 liður 14
Björn Hafþór fylgdi dagskrárliðnum úr hlaði með framsögu þar sem stofnunin var kynnt.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson, Valdimar O Hermannsson, Jens Garðar Helgason.Tillaga: Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að sveitarfélagið gerist stofnaðili að nýrri stoðstofnun á Austurlandi, AST - stoð- og þekkingarstofnun og greiði framlag stofnaðila 50.000 krónur. Bæjarstjóra falið umboð til að skrifa undir stofnsamning og skipulagsskrá.Tillaga staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 111 liður 1.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 285“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Skipulagskrá AST (drög)