Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 287

2. apríl 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 112 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Sævar Guðjónsson, Guðmundur Þorgrímsson.Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársuppgjör Fjarðabyggðar 2011

    Mál 1203156 Allur ferill málsins

    Þenna lið dagskrár sat fjármálstjóri ásamt sérfræðingi á fjármálasviði.Trúnaðarmál.

    Fjallað um drög að ársuppgjöri 2011.

  2. 2. Árskýrsla Haust 2011

    Mál 1203114 Allur ferill málsins

    Árskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2011 lögð fram til kynningar.   Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar

  3. 3. Opinn fund á Reyðarfirði

    Mál 1203120 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Ásmundar Ásmundsonar þar sem óskað er eftir opnum fundi um umhverfismál á Reyðarfirði.Bæjarráð tekur vel í efni bréfs Ásmundar og stefnt verði að því halda fund fyrir lok apríl.    Bréfinu jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  4. 4. Skate Park á Fáskrúðsfjörð

    Mál 1203116 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf frá brettaáhugamönnum vegna hugmynda um Skatepark á Fáskrúðsfirði.Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Yfirfærsla heilsugæslu frá ríki til sveitarfélaga - mál 220.

    Mál 1203143 Allur ferill málsins

    Framlögð tilaga til þingsályktunar um mótun tímasettrar áætlunar um yfirfærslu heilsugæslunnar frá ríki til sveitarfélaga.

  6. 6. Siðareglur

    Mál 1201063 Allur ferill málsins

    Frestað frá síðasta fundi.  Fram lagðar tillögur að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa og stjórnendur Fjarðabyggðar.Bæjarráð vísar reglunum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 8.maí

    Mál 1203148 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Lífeyrissjóðsins Stapa en fundurinn verður haldinn 8. maí 2012.

  8. 8. Fulltrúi eldri borgara í nefnd til ákvörðunartöku dvalarheimilis Hulduhlíðar

    Mál 1203154 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Félags eldri borgara á Eskifirði þar sem óskað er eftir að fulltrúi félagsins fái sæti í nefnd þeirri sem tekur ákvarðanir um örlög dvalarheimilsins Hulduhlíðar á Eskifirði.Bæjarráð tekur undir sjónarmið félagsins og fulltrúi þeirra fái setu í nefnd sem fjalli um málefnið ef hún verður skipuð.Vísað til félagsmálanefndar til kynningar.

  9. 9. Stjórnarfundur StarfA 2012

    Mál 1203155 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Starfsendurhæfingar Austurlands frá 28. mars 2012 lögð fram til kynningar.Vísað til félagsmálanefndar til upplýsinga.

  10. 10. Tillaga um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings

    Mál 1203157 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að farið verði í sérstakt átak í umhverfismálum í tengslum við útgáfu vorbæklings 2012.  Sérstaklega verði beint sjónum að bæjarkjörnunum, umhverfi fyrirtækja og lóða í þeirra umsjá, lóða í umsjón einstaklinga og opinna svæða sem eru á ábyrgð bæjarfélagsins.  Hvatt verði sérstaklega til umhverfisvitundar og mikilvægi þess að fallegt og snyrtilegt umhverfi séu lífsgæði.  Umfjöllun vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarnefndar og framkvæmd verði á hendi framkvæmdasviðs sem vinni verkefnaáætlun til að stuðla að framgangi verkefnisins.

  11. 11. Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð - mál 120.

    Mál 1203130 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um beina þátttöku sveitarfélaga og starfsmanna heilbrigðisstofnana í skipulagningu og stjórnun heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.

  12. 12. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)

    Mál 1203161 Allur ferill málsins

    Dagskrárliðnum frestað til næsta fundar bæjarráðs.

  13. 13. Fyrirspurn vegna Fannardalsvegar í Norðfirði

    Mál 1203158 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar.Fram lagt bréf frá Guðröði Hákonarsyni þar sem spurst er fyrir um lagfæringar á Fannardalsvegi í Norðfirði.Bæjarráð óskar eftir umsögn mannvirkjastjóra um málið.