Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 288

9. apríl 2012, kl. 08:30 til 10:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 112 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársuppgjör Fjarðabyggðar 2011

    Mál 1203156 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál. Þennan dagskrárlið sátu fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins.Kynnt drög að ársreikningi ásamt endurskoðunarskýrslu.  Jafnframt sátu Ásta Kristín Sigurjónsdóttir og Valdimar O Hermannssonn varabæjarráðsfulltrúar fundinn.Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs á fimmtudaginn kemur fyrir bæjarstjórnarfund.

  2. 2. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)

    Mál 1203161 Allur ferill málsins

    Frá síðasta fundi bæjarráðs.  Þennan dagskrárlið fundar sátu jafnframt frá Síldarvinnslunni Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri, frá Eskju Þorsteinn Kristjánsson forstjóri og Páll Snorrason fjármálastjóri, frá Loðnuvinnslunni Gísli Jónatansson og Kjartan Reynisson, Frá KPMG Flosi Eiríksson og Magnús Jónsson.Farið yfir áhrif frumvarpa til laga um stjórn fiskveiða og veiðileifagjalds á sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð og samfélagið í Fjarðabyggð.  Unnið verður áfram að því að skoða áhrif af frumvörpunum á Fjarðabyggð.

  3. 3. Ársreikningur Sparisjóðs Norðfjarðar 2011

    Mál 1204002 Allur ferill málsins

    Fram lagður til kynningar ársreikningur Sparisjóðs Norðfjarðar fyrir árið 2011.

  4. 4. Landsþingsfulltrúar og 26.landsþing 2012

    Mál 1202084 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fjárhagsáætlun Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir árið 2012.

  5. 5. Ársreikningur Sambands íslenskra sveitarfélaga 2011

    Mál 1204006 Allur ferill málsins

    Fram lagður til kynningar ársreikningur Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árið 2011.

  6. 6. Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012

    Mál 1201252 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir Sambands sveitarfélaga Austurlandi.  Stjórnarfundar frá 27. mars og framkvæmdaráðs frá 12. mars s.l.

  7. 7. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1110202 Allur ferill málsins

    Taka þarf afstöðu til hvort greiða eigi framlag í sjóðinn á árinu 2012. Bæjarráð samþykkir að greitt verði framlag nr. 2 til sjóðsins. Tekið af liðnum óráðstafað.

  8. 8. Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2012

    Mál 1204010 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar frá 19. mars lögð fram til kynningar.

  9. 9. Ályktun búnaðarþings 2012

    Mál 1204014 Allur ferill málsins

    Fram lögð ályktun Búnaðarþings þar sem fjallað er um tvöfalda búsetu.