Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)
Mál 1203161 Fyrst á dagskrá 2. apríl 2012, síðast 10. maí 2012. 10 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í hnotskurn
Bæjarráð Fjarðabyggðar lét vinna umsögn um tvö stjórnarfrumvörp, um stjórn fiskveiða og um veiðileyfagjöld, á grunni skýrslu KPMG um áhrif þeirra á sveitarfélagið, og sendi hana atvinnuveganefnd Alþingis 20. apríl 201256. Bæjarráð samþykkti umsögnina og ályktun gegn frumvörpunum og fól síðan formanni bæjarráðs að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar á fund atvinnuveganefndar 8. maí 201269.
Staðan
Síðasta skráða skref er að bæjarstjórn staðfesti þá ákvörðun bæjarráðs að formaður bæjarráðs mætti fyrir hönd Fjarðabyggðar á fund atvinnuveganefndar Alþingis 8. maí 2012910.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 287 liður 12
Dagskrárliðnum var frestað til næsta fundar bæjarráðs.
Endursögn gervigreindar
Dagskrárliðnum frestað til næsta fundar bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 288 liður 2
Fulltrúar Síldarvinnslunnar, Eskju, Loðnuvinnslunnar og KPMG sátu fundinn þegar farið var yfir áhrif frumvarpanna á sjávarútvegsfyrirtæki og samfélagið í Fjarðabyggð, og ákveðið var að skoða áhrifin áfram.
Endursögn gervigreindar
Frá síðasta fundi bæjarráðs. Þennan dagskrárlið fundar sátu jafnframt frá Síldarvinnslunni Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri, frá Eskju Þorsteinn Kristjánsson forstjóri og Páll Snorrason fjármálastjóri, frá Loðnuvinnslunni Gísli Jónatansson og Kjartan Reynisson, Frá KPMG Flosi Eiríksson og Magnús Jónsson.Farið yfir áhrif frumvarpa til laga um stjórn fiskveiða og veiðileifagjalds á sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð og samfélagið í Fjarðabyggð. Unnið verður áfram að því að skoða áhrif af frumvörpunum á Fjarðabyggð.
-
Bæjarstjórn, fundur 112 liður 2.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 287“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 112 liður 3.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 288“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 290 liður 7
Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs var falið að vinna áfram að umsögn sem byggð yrði meðal annars á vinnu KPMG, en umsagnarfrestur var til 20. apríl.
Endursögn gervigreindar
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fól bæjarráði að láta vinna umsögn og álykta vegna hugsanlegra áhrifa frumvarps til laga um stjórn fiskveiða og veiðileyfagjalds á sveitarfélagið. Umsögnin skal meðal annars byggð á niðurstöðu vinnu KPMG á áhrifum frumvarpsins á rekstur Fjarðabyggðar. Umsagnarfrestur vegna áðurgreindra frumvarpa er til 20.apríl næstkomandi og er verið að vinna að umsögn fyrir sveitarfélagið ásamt því að skoða hvað áhrif þau hafa á Fjarðabyggð. Þegar umsögnin liggur fyrir er eðlilegt að bæjarráð álykti í ljósi þeirra upplýsinga sem þá liggja fyrir. Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs falið að vinna áfram að umsögn.
-
Bæjarráð, fundur 291 liður 9
Bæjarráð samþykkti umsögnina sem send var 20. apríl og samþykkti jafnframt ályktun þar sem báðum frumvörpunum er mótmælt og ítrekuð er bókun bæjarstjórnar frá 9. júní 2011 um að stjórnvöld og hagsmunaaðilar vinni saman að nýju frumvarpi.
Endursögn gervigreindar
Framlögð umsögn vegna tveggja stjórnarfrumvarpa til laga. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðileyfagjöld. Umsögn var send föstudaginn 20. apríl s.l. og var byggð á grundi skýrslu KPMG. Bæjarráð samþykkir umsögnina.Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur á liðnum vikum kynnt sér efni frumvarpa til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjalds og velt fyrir sér áhrifum þeirra á sveitarfélagið. Meðal annars hefur bæjarráð rætt við forsvarsmenn fyrirtækja í sjávarútvegi innan Fjarðabyggðar og fulltrúa annarra sveitarfélaga. Einnig var horft til ályktunar stjórnar Afls starfsgreinafélags. Þá var ákveðið að fá KPMG til að vinna skýrslu um áhrif þessa frumvarpa á Fjarðabyggð og á grunni hennar var veitt umsögn um þau til Atvinnuvegarnefndar Alþingis þann 20.apríl síðastliðinn. Samhliða þeirri umsögn ályktar bæjarráð hér með um þessi frumvörp og mótmælir þeim báðum harðlega. Ljóst er þegar áhrif þeirra eru skoðuð muni þau hafa verulega neikvæð áhrif á atvinnulífið í Fjarðabyggð og sveitarfélagið um leið. Með skerðingu aflaheimilda og tilfærslu á þeim mun það óhjákvæmilega leiða til fækkunar starfa í sveitarfélaginu og draga úr fjárfestingu í greininni og afleiddri þjónustu. Bæjarráð ítrekar þá afstöðu sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar setti fram í bókun þann 9.júní 2011 að mikilvægt sé að stjórnvöld og hagsmunaaðilar setjist aftur að sáttarborði og vinni að frumvarpi um sjávarútvegsmál sem styrki greinina til framtíðar, sníði þá agnúa af kerfinu sem hvað mest eru umdeildir með hagsmuni íslensks samfélags að leiðarljósi. Þá áréttar bæjarráð einnig að tillögur "sáttanefndarinnar" svokölluðu hafi verið skref í rétta átt þar sem allir hagsmunaaðilar náðu niðurstöðu um þær breytingar sem hægt er að gera og yrði í sátt við þjóðina.
-
Bæjarstjórn, fundur 113 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 290“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 113 liður 3.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 291“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 293 liður 11
Lagður var fram tölvupóstur frá atvinnuveganefnd Alþingis sem boðaði fulltrúa Fjarðabyggðar á fund 8. maí, og bæjarráð fól formanni bæjarráðs, Jens Garðari Helgasyni, að mæta.
Endursögn gervigreindar
Fram lagður tölvupóstur frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem fulltrúi Fjarðabyggðar er boðaður á fund nefndarinnar 8. maí n.k.Bæjarráð felur formanni bæjarráðs Jens Garðari Helgasyni að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar á fund atvinnuveganefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 114 liður 2.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 293“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.