Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 113

26. apríl 2012, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 289

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Óskar Þór Hallgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Ársuppgjör Fjarðabyggðar 20111203156
  2. 2. Bæjarráð - 290

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð1101233
    2. 2.2 Sameining lífeyirssjóða sveitarfélaga1204044
    3. 2.3 Rekstur knattspyrnudeildar UMF Leiknis1203098
    4. 2.4 Aðalfundur Loðnuvinnslunar hf 27.apríl 20121204037
    5. 2.5 Ársreikningur Sparisjóðs Norðfjarðar 20111204002
    6. 2.6 Fjármögnun kjötvinnslu1204009
    7. 2.7 Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)1203161
    8. 2.8 Fyrirspurn vegna Fannardalsvegar í Norðfirði1203158
    9. 2.9 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
    10. 2.10 Arðgreiðsla Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.vegna 20111204038
    11. 2.11 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20121201124
  3. 3. Bæjarráð - 291

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Drög til umsagnar - reglulegerð um eftirlit og fjárhagsleg viðmið svf.1204048
    2. 3.2 Formleg kvörtun vegna opnunartíma sundlaugar Eskifjarðar.1204055
    3. 3.3 Sumarlokun bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar 20121002018
    4. 3.4 Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð1101233
    5. 3.5 Aðgengi hreyfihamlaða að sundlaug Neskaupstaðar1204068
    6. 3.6 Staðfesting á útsvarsprósentu við álagningu 20121204060
    7. 3.7 Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 20121104004
    8. 3.8 Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 20121105180
    9. 3.9 Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)1203161
    10. 3.10 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 401204007F
    11. 3.11 Fræðslu- og frístundanefnd - 241204002F
    12. 3.12 Atvinnu- og menningarnefnd - 291203018F
    13. 3.13 Fundargerðir félagsmálanefndar 20121201123
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 40

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Óskar Þór Hallgrímsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson. Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Upplýsingarskilti við innkomu í hverfi
    2. 4.2 Skilgreind hundasvæði í Fjarðabyggð
    3. 4.3 Hestamenn á Fáskrúðsfirði
    4. 4.4 740 Hafnarbraut 19 - lóðarstækkun
    5. 4.5 740 Hafnarbraut 17 - Breytt notkun
    6. 4.6 740-Deiliskipulag frístundabyggðar í Skuggahlíðarhálsi
    7. 4.7 750-Deiliskipulag varnargarða í Nýjabæjarlæk
    8. 4.8 730 Nesbraut 6 - frárennslismál
    9. 4.9 735 Strandgata 78 735 - lóðarmál
    10. 4.10 735 Hlíðarendavegur 6b
    11. 4.11 Árskýrsla Haust 2011
    12. 4.12 Fundagerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2012
    13. 4.13 Endurskoðun á umferðarsamþykkt
    14. 4.14 Hraðaskilti í íbúðargötu á Eskifirði
    15. 4.15 Hraðatakmarkanir við Víðimýri í Neskaupstað
    16. 4.16 Opinn fund á Reyðarfirði
    17. 4.17 Skate Park á Fáskrúðsfjörð
    18. 4.18 Tillaga bæjarstjóra um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings
    19. 4.19 Vernd, friðun og veiðar á viltum dýrum (hreindýrum) - umsögn
    20. 4.20 Kerfisáætlun 2012,Orkujöfnun 2014,Afljöfnunður 2014-15
    21. 4.21 Stefna um lagningu raflína í jörð
    22. 4.22 Umsókn um styrk til samgönguleiða 2012
    23. 4.23 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 31
  5. 5. Atvinnu- og menningarnefnd - 29

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku:  Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jón Björn Hakonarson.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

  6. 6. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012

    Mál 1201123 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 29 frá 16. apríl s.l.Enginn tók til máls.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  7. 7. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012

    Mál 1201124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 23 frá 10. apríl s.l.Enginn tók til málsFundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

  8. 8. Fræðslu- og frístundanefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.

  9. 9. 740-Deiliskipulag frístundabyggðar í Skuggahlíðarhálsi

    Mál 2004-08-20-1043 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar fylgdu málinu úr hlaði.Bæjarstjórn staðfestir að deiliskipulag frístundabyggðar í Skuggahlíðarhálsi sé í samræmi við ákvæði um hverfisvernd birkiskóga í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Skógareyðingu verður mætt með mótvægisaðgerðum eins og Skógrækt ríkisins leggur til. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að greinagerð deiliskipulagsins verði breytt þannig að í kafla um fráveitur verði gert ráð fyrir að eftir að uppbyggingu hverfisins líkur verði allir lóðarhafar skyldaðir til að taka þátt í og tengjast sameiginlegri fráveitu.

    Til máls tók  Sævar Guðjónsson.

    Deiliskipulag fyrir frístundabyggð í Skuggahlíðarhálsi með framansögðum breytingum samþykkt með 8 atkvæðum.  Jón Björn Hákonarson sat hjá.

  10. 10. 750-Deiliskipulag varnargarða í Nýjabæjarlæk

    Mál 1112072 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. Lögð fram matsskýrsla vegna ofanflóðavarna í Nýjabæjarlæk á Fáskrúðsfirði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn telur framkvæmdin ekki háða mati á umhverfisáhrifum og samþykkir framlagða matsskýrslu með 9 atkvæðum.

  11. 11. Staðfesting á útsvarsprósentu við álagningu 2012

    Mál 1204060 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að útsvarhlutfall ársins 2011 verði það sama og ákveðið var á fundi bæjarstjórnar 25. nóvember 2010, 14,48% vegna tekjuársins 2011.

  12. 12. Lokaskýrsla starfshóps um skólamál í Fjarðabyggð

    Mál 1101233 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi skýrslu starfshópsins úr hlaði með greinargerð.Skýrsla starfshóps um skólamál í Fjarðabyggð lögð fram til afgreiðslu.Til máls tóku: Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson.Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skýrslu starfshópsins ásamt tillögum bæjarráðs frá 24. apríl s.l.

  13. 13. Fjárhagsáætlun 2012 - Viðauki nr.2

    Mál 1204106 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.Lagður fram viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2012. Farið er fram á að veitt verði aukin heimild til framkvæmdasviðs til framkvæmda við breytingar á húsnæði og lóð Grunnskóla Stöðvarfjarðar að fjárhæð 5,5 m.kr. samkvæmt  kostnaðaráætlun. Þessum kostnaðarauka verði mætt með sölu núverandi húsnæðis leikskólans Balaborgar á Stöðvarfirði. Náist ekki að selja húsnæðið á árinu til að mæta umræddum framkvæmdakostnaði lækki handbært fé í efnahagi um samsvarandi fjárhæð. Enginn tók til máls. Viðauki við fjárhagsáætlun 2012 samþykktur með 9 atkvæðum.

  14. 14. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2011, síðari umræða.

    Mál 1203156 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2011, síðari umræða.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana árið 2011 með 9 atkvæðum.