Formleg kvörtun vegna opnunartíma sundlaugar Eskifjarðar.
Mál 1204055 Fyrst á dagskrá 24. apríl 2012, síðast 26. apríl 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: EskifjörðurÍþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 291 liður 2
Framlagt bréf Ingunnar Eir Andrésdóttur þar sem kvartað er yfir opnunartíma sundlaugar á Eskifirði og skertu þjónustustigi vegna hagræðingaaðgerða.Bæjarráð fór yfir erindi en vekur athygli á því að í gildi er starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 sem gerir ráð fyrir því að opnunartími sundlaugarinnar lengist að sumartíma. Við fjárhagsáætlunargerð ársins 2013 verður reynslan metin og tekin ný ákvörðun um opnunartíma. Vísað jafnframt til fræðslu- og frístundanefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 113 liður 3.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 291“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.