Fjárhagsáætlun 2012 - Viðauki nr.2
Mál 1204106 Á dagskrá 26. apríl 2012. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarstjórn, fundur 113 liður 13
Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.Lagður fram viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2012. Farið er fram á að veitt verði aukin heimild til framkvæmdasviðs til framkvæmda við breytingar á húsnæði og lóð Grunnskóla Stöðvarfjarðar að fjárhæð 5,5 m.kr. samkvæmt kostnaðaráætlun. Þessum kostnaðarauka verði mætt með sölu núverandi húsnæðis leikskólans Balaborgar á Stöðvarfirði. Náist ekki að selja húsnæðið á árinu til að mæta umræddum framkvæmdakostnaði lækki handbært fé í efnahagi um samsvarandi fjárhæð. Enginn tók til máls. Viðauki við fjárhagsáætlun 2012 samþykktur með 9 atkvæðum.