Fræðslu- og frístundanefnd - 24
Mál 1204002F Fyrst á dagskrá 24. apríl 2012, síðast 26. apríl 2012. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 291 liður 11
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 24 frá 18.apríl lögð fram.Bæjarráð tekur undir bókun fræðslu- og frístundanefndar um ferðakostnað íþróttafélaga en nefndin bendir á að um gríðarlegan ferðakostnað er að ræða hjá liðum sem keppa í landsdeildum í knattspyrnu. Það virðist vera þannig að félög geti ekki brúað þennan kostnað nema með aðkomu sveitafélagsins þó eðlilegra væri að Knattspyrnusambandið og/eða ríkisvaldið kæmi með frekari hætti að því að jafna þennan kostnað á milli landshluta enda gríðarlegur munur á kostnaði milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka upp málið við sveitarfélög þar sem eins er ástatt.
-
Bæjarstjórn, fundur 113 liður 8
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 113 liður 3.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 291“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.