Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 293

7. maí 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 114 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  Fundargerð að undanskildum lið 10, málefni Eignarhaldsfélagsins fasteignar hf. staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Menningarráðs Austurlands - Dagskrá og tilnefning á aðalfund

    Mál 1205010 Allur ferill málsins

    Tilnefning fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfund Menningarráðs Austurlands sem haldinn verður föstudaginn 11.maí á Vopnafirði. Fjarðabyggð á 5 fulltrúa. Bæjarráð felur eftirtöldum fulltrúum að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn.  Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Pétur Þór Sörensson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Þorlákur Ágústsson.  Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Forkaupsréttarlisti Fjarðabyggðar 2012

    Mál 1201259 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.Forkaupsréttarlista yfir fasteignir í Fjarðabyggð vísað til afgreiðslu bæjarráðs frá fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar 30.apríl.Bæjarráð vísar lista til nánari skoðunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. 3. Framkvæmdir við gömlu bæjarbryggjuna í Neskaupstað

    Mál 1205016 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sátu mannvirkjastjóri og framkvæmastjóri hafna.Framlagt bréf frá íbúasamtökum á Norðfirði þar sem óskað er eftir kynningarfundi vegna framkvæmda við gömlu bæjarbryggjuna í Neskaupstað.  Bæjarráð tekur vel í erindið.  Verður tekið fyrir á fundi sem haldinn verður um umhverfismál í Neskaupstað þriðjudaginn 15. maí n.k. kl. 20:00.   Þá verður haldinn fundur um umhverfismál á Reyðarfirði mánudaginn 14. maí n.k. kl 20:00.

  4. 4. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2012

    Mál 1205009 Allur ferill málsins

    Fundagerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 3. 2. og 27.4. s.l. lagðar fram til kynningar. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  5. 5. Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila

    Mál 1110040 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ræða formanns Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu þar sem fjallað er um stöðu viðræðna samtakanna við Fjármálaráðuneytið um greiðslu lífeyrisskuldbindinga.  Málið snýst um ábyrgð á greiðslu lífeyrisskuldbindinga hjúkrunarheimila. Bæjarráð felur bæjarritara að fylgja málinu eftir.

  6. 6. Verkefni starfsmanns AST í ferða- og menningarmálum sumarið 2012

    Mál 1204136 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að tímabundnum viðauka við þjónustusamning við AST stoðstofnun um sérgreind verkefni fyrir tímabilið maí til ágúst 2012.

  7. 7. Memorandum of the JEFES Cities

    Mál 1205020 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um norræn vinabæjarsamskipti frá fundi vinabæja í Jyväskylä 24.mars sl. Þar er tekið undir tillögur sem lagðar voru fram um vinabæjarsamstarf.  Tilnefna þarf tengiliði vegna málaflokka.  Bæjarráð samþykkir tillögurnar enda eru þær í anda þeirra hugmynda sem lagðar voru upp á fundi 2010.

  8. 8. Verklag vegna breytinga á skipan í ráð,nefndir og stjórnir í stjórnkerfi Fjarðabyggðar

    Mál 1205022 Allur ferill málsins

    Fram lagt verklag vegna skipan fulltrúa í nefndir sveitarfélagsins.  Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti verklagið

  9. 9. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð

    Mál 1106064 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað móttökufulltrúa nýbúa frá 4.maí um flutninga til og frá Fjarðabyggð sl. mánuði.  Í Fjarðabyggð standast tölur nokkurn vegin á.

  10. 10. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf

    Mál 1104081 Allur ferill málsins

    Fram lagt tölvupóstur frá Eignarhaldsfélaginu fasteign um fjárhagslega endurskipulagningu og grunn að nýjum leigusamningum. Boðað er til fundar þriðjudaginn 8. maí n.k. um efni leigusamnings og áhrif á leigutaka í endurskipulögðu félagi.Bæjarráð felur fjármálastjóra að mæta á fund fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  11. 11. Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (Heildarlög)

    Mál 1203161 Allur ferill málsins

    Fram lagður tölvupóstur frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem fulltrúi Fjarðabyggðar er boðaður á fund nefndarinnar 8. maí n.k.Bæjarráð felur formanni bæjarráðs Jens Garðari Helgasyni að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar á fund atvinnuveganefndar.

  12. 12. Stofnfundur Austfirskra stoðstofnana AST 8.maí 2012

    Mál 1204115 Allur ferill málsins

    Stofnfundur austfirskra stoðstofnana er boðaður 8. maí n.k. á Reyðarfirði.  Fram lagður þjónustusamningur við stoðstofnunina um þjónustu á sviði menningar-, ferða-, atvinnu- og menntamála.Bæjarstjóra falin undirritun þjónustusamnings við stoðstofnunina.

  13. 13. Framkvæmdir við húsnæðisúrræði í málaflokki fatlaðs fólks - áætlanagerð sveitarfélaga og þjónustusvæða

    Mál 1204128 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að umsögn félagsmálastjóra og verkefnastjóra hjá Skólaskrifstofu Austurlands vegna framkvæmda við húsnæðisúrræði í málefnum fatlaðs fólks. Félagsmálanefnd tekur málið til umfjöllunar síðdegis mánudaginn 7. maí. Mannvirkjastjóri tekur saman ítarlegri kostnaðaráætlun áður en umsögn verður send til Sambandsins fyrir 11. maí nk. en þá rennur umsagnarfrestur út.Bæjarráð vísar umsögn til staðfestingar bæjarstjórnar.

  14. 14. Atvinnu- og menningarnefnd - 30

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 30 frá 3.maí lögð fram til kynningar.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 41

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 41 frá 30.apríl lögð fram.

  16. 16. Hafnarstjórn - 98

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 98 frá 2.maí sl. lögð fram til kynningar

  17. 17. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012

    Mál 1201124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar  nr. 24 frá 30.apríl lögð fram til kynningar.