Bæjarráð, fundur 294
14. maí 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 115 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kynnisferð til Brussel 18-20. júní um þátttöku sveitarfélaga í byggðastefnu ESB
Mál 1205053 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi þar sem boðið er upp á námsferð fyrir evrópskt sveitarstjórnarfólk til Brussel.
-
2. Ósk um aukna samvinnu - útgáfa á bæklingi
Mál 1205027 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf frá Heilbrigðisstofnun Austurlands þar sem óskað er eftir þátttöku Fjarðabyggðar í gerð kynningarbæklings um starfsemi stofnunarinnar.Bæjarráð tekur jákvætt í erindi og felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn stofnunarinnar.
-
3. Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
Mál 1104004 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar frá 2.maí lögð fram til kynningar auk greinargerðar um sérfræðiþjónustu fyrir austfirsk börn, ungmenni og skóla.Vísað til fræðslu- og frístundanefndar og félagsmálanefndar.
-
4. Ársreikningur Náttúrustofu Austurlands 2011
Mál 1205041 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar ársreikningur Náttúrustofu Austurlands fyrir árið 2011.
-
5. Umsögn um mál nr. 762 sparisjóðir.
Mál 1205063 Allur ferill málsins
Fram lagður tölvupóstur frá Alþingi þar sem óskað er umsagnar um mál 762 Sparisjóðir, frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki.Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni að vera fulltrúi Fjarðabyggðar á kynningarfundi um málið.
-
6. 50. ára afmæli Egilsbúðar
Mál 1205064 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað mannvirkjastjóra um viðhaldsþörf Egilsbúðar. Bæjarráð samþykkir að í tilefni af 50 ára afmæli Egilsbúðar verði lagðar 760.000 kr. af liðnum óraðstafað 21-69- í viðhald Egilsbúðar og mismunur verði greiddur með leigugreiðslum leigutaka. Framkvæmdir samkvæmt minnisblaði eru metnar tæplega 3,6 milljónir kr. Leigugreiðslum að upphæð 2.840.000 kr. verði ráðstafað til verkefnis. Ófyrirséðir liðir eru 800.000 kr.
-
7. Fjármögnun og lánasamningar
Mál 1205065 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri.Fram lagt minnisblað fjármálastjóra og greinargerð lögmannsstofunnar Sóknar um stöðu erlendra lánasamninga vegna undangenginn dóma um gildi lánasamninga og endurútreikning þeirra.Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða málið áfram með það að markmiði að gæta hagsmuna sveitarfélagsins.
-
8. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Mál 1104081 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn veitti bæjarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu varðandi samþykki nýrra leigusamninga fyrir hlutahafafund EFF 21. maí 2012. Var það gert vegna þröngs tímaramma en nýir leigusamningar eru hluti af fjárhagslegri endurskipulagningu Eignarhaldsfélagsins fasteignar hf. Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri.Fram lagt minnisblað fjármálastjóra ásamt gögnum tengdum nýjum leigusamningum við Eignarhaldsfélagið fasteign.Bæjarráð samþykkir að málið verði tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
9. Skólamáltíðir í Fjarðabyggð 2012
Mál 1203087 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri.Fram lögð til kynningar drög að útboðsgögnum vegna skólamáltíða í Fjarðabyggð.
-
10. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Mál 1110202 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að greidd sé 3ja greiðsla framlags til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Bæjarráð ítrekar að í samræmi við niðurstöður fundar um sjóðinn að stjórn Atvinnuþróunarsjóðs og sveitarfélaganna taki til skoðunar hlutverk hans í nýju umhverfi stoðstofnana og mörkuð sé framtíðarstefna hans sem fyrst.
-
11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Mál 1201123 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar Fjarðabyggðar nr. 30 frá 7. maí sl. lögð fram til kynningar.