Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 98

2. maí 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 293 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 98 frá 2.maí sl. lögð fram til kynningar

  • Bæjarstjórn, fundur 114 liður 6

    Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson.Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Markaðsstarf Fjarðbyggðahafna

    Mál 1203034 Allur ferill málsins

    Umræða um markaðsmál Fjarðabyggðarhafna.  Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að sjá um að safna saman upplýsingum um Fjarðabyggðarhafnir, þjónustu í Fjarðabyggð og á Austurlandi sem tengist hafnsækinni starfsemi til upplýsinga þeim sem áhuga sýna á starfsemi í Fjarðabyggð.

  2. 2. Fundagerðir CI á árinu 2012

    Mál 1204109 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 23. febrúar 2012. Kynnt.

  3. 3. Franski spítalinn - bryggjuaðstaða

    Mál 1105174 Allur ferill málsins

    Framhald erindis frá 11. maí 2011 þar sem óskað er eftir aðkomu hafnarsjóðs að gerð bryggju framan við Franska spítalann á Fáskrúðsfirði. Fyrir fundinum lá minnisblað vegna málsins.  Hafnarstjórn samþykkir að byggja bryggju á grunni minnisblaðsins.  Kostnaður við verkið er áætlaður allt að 10 millj.kr.

  4. 4. Hafnarmál á Norðfirði

    Mál 1111028 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir stöðu mála.

  5. 5. Ósk um að setja upp vindmælir á vitan á Neskaupstað

    Mál 1204084 Allur ferill málsins

    Erindi frá Stefáni K. Guðjónssyni þar sem óskað er eftir að fá að setja upp vindmæli í Norðfjarðarvitann á festingu sem er til staðar og ekkert henni. Hafnarstjórn samþykkir að heimila uppsetningu á vindmæli.

  6. 6. Smábátahöfn Reyðarfirði

    Mál 1001100 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá opnun tilboða í yfirborðsfrágang við smábátahöfnina á Reyðarfirði dags. 11. apríl 2012. Hafnarstjórn staðfesti verksamning við lægstbjóðanda.

  7. 7. Umsókn um styrk til endurbyggingu á bryggju við sjóhús

    Mál 1204057 Allur ferill málsins

    Erindi frá Sævari Jónssyni móttekið 16. apríl 2012 þar sem óskað er eftir ákveðinni fjárhæð í styrk til endurbyggingar á bryggju framan við sjóhús að Egilsbraut 26. Hafnarstjórn tekur vel í erindið en óskar eftir að fá kostnaðarmat á verkið.  Afgreiðslu frestað.

  8. 8. Smábátahöfn Stöðvarfirði

    Mál 1112090 Allur ferill málsins

    Úttekt Siglingastofnunar á hafnarmálum á Stöðvarfirði með tilliti til möguleika á fjölgun leguplássa fyrir smábáta.  Málið tekið fyrir á næsta fundi.

  9. 9. Tillaga bæjarstjóra um vorhreinsun í tengslum við útgáfu vorbæklings

    Mál 1203157 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 2. apríl sl. að farið verði í sérstakt átak í umhverfismálum í tengslum við útgáfu vorbæklings 2012. Sérstaklega verði beint sjónum að bæjarkjörnunum, umhverfi fyrirtækja og lóða í þeirra umsjá, lóða í umsjón einstaklinga og opinna svæða sem eru á ábyrgð bæjarfélagsins. Hvatt verði sérstaklega til umhverfisvitundar og mikilvægi þess að fallegt og snyrtilegt umhverfi séu lífsgæði. Bæjarráð vísaði umfjöllun um samþykktina til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarnefndar og framkvæmd verði á hendi framkvæmdasviðs sem vinni verkefnaáætlun til að stuðla að framgangi verkefnisins. Hafnarsjóður fagnar framtaki bæjarráðs.  Jafnframt bendir hafnarstjórn á að í framkvæmdaáætlun ársins 2012 eru ætlaðar um 60 milljónir króna til umhverfisfrágangs við umhverfi hafna.