Hafnarstjórn, fundur 99
29. maí 2012, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 296 liður 16
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 99 frá 29 maí lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 116 liður 2
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Guðmundur Þorgrímsson, Sævar Guðjónsson, Ásta Eggertsdóttir, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Mál 1202146 Allur ferill málsins
Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 344 frá 16. mars 2012. Til kynningar.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Mál 1202146 Allur ferill málsins
Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 345 frá 23. apríl 2012. Til kynningar.
-
3. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Mál 1202146 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 346 dags. 15. maí 2012. Kynnt.
-
4. Fundagerðir CI á árinu 2012
Mál 1204109 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 27. apríl 2012. Kynnt. Farið var yfir það sem er framundan og framkmæmdastjóra heimilað að tilkynna þátttöku.
-
5. Aðalfundaboð Fiskmarkaðs Austurlands 30.maí 2012
Mál 1205100 Allur ferill málsins
Fundarboð á aðalfund Fiskmarkaðar Austurlands ehf sem halda á 31. maí 2012. Hafnarstjórn fól framkvæmdastjóra að vera fulltrúi á fundinum.
-
6. Aðalfundur Cruise Iceland 25. maí 2012
Mál 1205018 Allur ferill málsins
Aðalfundur Cruise Iceland var haldinn á Flúðum 25. maí sl. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fundinum, en fundargerð verðu kynnt síðar. Hafnarstjórn harmar að fjórum árum eftir inngöngu í Cruise Iceland skuli höfnin ekki vera komin inn í kynningarbækling samtakanna.
-
7. Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum
Mál 1112011 Allur ferill málsins
Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum fyrir hafnirnar í Fjarðabyggð. Kynnt en áætlanirnar hafa verið sendar til Umhverfisstofnunar til afgreiðslu.
-
8. Smábátahöfn Stöðvarfirði
Mál 1112090 Allur ferill málsins
Minnisblað vegna fyrirspurnar á síðasta fundi hafnarstjórnar um fingrasetningu og bil milli fingra á flotbryggjum. Kynnt
-
9. Smábátahöfn Stöðvarfirði
Mál 1112090 Allur ferill málsins
Úttekt Siglingastofnunar frá maí 2012 á möguleikum til fjölgunar plássa fyrir smábáta í Stöðvarfjarðarhöfn. Kynnt og vísað til fjárhagsáætlunarvinnu.
-
10. Ósk um læst öryggishlið við smábátahöfnina í Neskaupstað
Mál 1205025 Allur ferill málsins
Erindi frá Klakksvík ehf dags. 7.maí 2012 þar sem óskað er eftir að farið verði án tafar í uppsetningu öryggishliða og öryggismyndavéla við smábátahöfnina í Neskaupstað. Hafnarstjórn hafnar erindinu og felur framkvæmdastjóra að svara erindinu.
-
11. Styrkbeiðni um enduruppbyggingu bryggju við sjóhús við Strandgötu 58 á Eskifirði
Mál 1205057 Allur ferill málsins
Erindi frá Böðvari Þórissyni dags. 9. maí 2012 þar sem óskað er eftir styrk til endurbyggingar á gamalli bryggju á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir greiðslu kostnaðar sem nemur helmingi að heildarkosntaði verks skv. framlögðum reikningum, styrkurinn getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 500.000 kr.
-
12. Umsókn um styrk til endurbyggingu á bryggju við sjóhús
Mál 1204057 Allur ferill málsins
Erindi frá Sævari Jónssyni móttekið 16. apríl 2012 tekið fyrir á fundi hafnarstjórnar 2. maí 2012, en var frestað til næsta fundar. Hafnarstjórn samþykkir greiðslu kostnaðar sem nemur helmingi að heildarkosntaði verks skv. framlögðum reikningum, styrkurinn getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 500.000 kr.
-
13. Hafnarmál á Norðfirði
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Farið yfir framvindu máls varðandi athugun á stækkun og endurskipulagningu Norðfjarðarhafnar. Ný gögn frá Siglingastofnun kynnt. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að koma á fundi við fyrsta tækifæri með notendum hafnarinnar og fulltrúa frá Siglingastofnun.
-
14. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Mál 0905163 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lá að taka ákvörðun um töku tilboðs í endurgerð gömlu bæjarbryggjunnar á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkti á grundvelli fyrirliggjandi gagna að ganga til samninga við þann aðila sem átti næst lægsta tilboðið í verkið, en það var Guðmundur Guðlaugsson.