Bæjarráð, fundur 296
4. júní 2012, kl. 08:30 til 10:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 116 liður 1
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson.Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Úthlutun íþróttastyrkja í Fjarðabyggð
Mál 1204122 Allur ferill málsins
Á fund bæjarráðs er mætt Þorbjörg Jónsdóttir formaður blakdeildar Þróttar og Eysteinn Þór Kristinssson varaformaður Þróttar.Til umræðu var úthlutun styrkja til íþróttafélaga og starfsemi blakdeildarinnar.
-
2. Lokun útibúa Landsbankans á Eskifirði og Fáskrúðsfirði
Mál 1205135 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Landsbankans hf. frá 31.maí þar sem óskað er eftir afnotum af húsnæði Félaga eldri borgara á Eskifirði og Fáskrúðsfirði fyrir þjónustu Landsbankans.Bæjarráð mótmælir efni bréfs Landsbankans þar sem óskað er eftir aðstöðu í húsnæði bæjarins eftir að bankinn hefur lokað útibúum sínum. Bæjarráð hafnar því að húsnæði verði nýtt til almennrar þjónustu fjármálastofnana en Félögum eldri borgara sé frjálst að velja hvaða fjármálastofnun þeir kjósa að taka á móti í húsnæði sem þau hafa til afnota. Bæjarráð telur sig ekki geta hafa afskipti af hvaða þjónustu félögin þiggja í húsnæðinu. Bæjarráð er á þessum tímapunkti ekki tilbúið til að taka afstöðu til framtíðarnýtingar á húsnæði bankans þar sem hann hefur lagt niður starfsemi sína nýverið.
-
3. Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði
Mál 1202133 Allur ferill málsins
Framlagður úrskurður Póst- og fjarskiptastofnunar frá 31. maí um lokun afgreiðslu Íslandspósts á Mjóafirði. Stofnunin fellst á rök Íslandspósts og heimilar fyrirtækinu að loka afgreiðslunni.Bæjarráð harmar úrskurðinn og bendir á fyrri bókanir sínar varðandi skerðingu á þjónustu í dreifbýli sveitarfélagsins.
-
4. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Minnisblað bæjarstjóra og Minjaverndar frá 29.maí lagt fram. Atvinnu- og menningarnefnd vísar til bæjarráðs 1., 3. og 7. lið í minnisblaði var vísað til bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu. Liðirnir fjalla um fasteignagjöld, umfang rekstrar og gistirými auk fyrirkomulags rekstrar og leigu safns um sjósókn.Bæjarráð felur bæjarstjóra að halda áfram að vinna að málinu.
-
5. Innanlandsátak í markaðssetningu
Mál 1205111 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar auglýsingarátak þar íslendingar er kvattir til ferðalaga innanlands. Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að Fjarðabyggð styrki átakið með styrkt um 200.000 kr..Bæjarráð samþykkir að styrkja átakið og kostnaði mætt innan fjárhagsramma menningarmála.
-
6. Vélsmiðjan á Eyrinni í Neskaupstað
Mál 1109181 Allur ferill málsins
Atvinnu- og menningarnefnd lagði til á fundi 31.maí að Menningarfjelagið fái vilyrði fyrir því að taka yfir vélsmiðjuna í Neskaupstað samkvæmt reglum um styrki í tengslum við atvinnuuppbyggingu vegna endurgerðar gamalla húsa og fasteigna í eigu Fjarðabyggðar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.Bæjarráð tekur vel í erindið en bíður eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar áður en ákveðið verður að veita Menningarfjelaginu vilyrði fyrir afnotum af húsnæði vélsmiðjunnar.
-
7. N4 og Fjarðabyggð - Beiðni um styrk
Mál 1205145 Allur ferill málsins
Vísað frá 31. fundi atvinnu- og menningarnefndar. Sjónvarpsstöðin N4 áætlar að senda vikulega út sjónvarpsþátt sem fjallar eingöngu um Austurlandið Stöðin leitar til fyrirtækja og sveitarfélaga á svæðinu til að afla styrkja. Lögð er fram ósk um mánaðarlegan 50.000 kr. styrk til sjónvarpsstöðvarinnar N4 vegna þessa sjónvarpsþáttar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu áfram. Kostnaður tekinn af liðnum óráðstafað 21-69-.
-
8. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Mál 1104081 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð hluthafafundar Eignarhaldsfélagsins fasteignar hf. frá 24. maí s.l.
-
9. Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
Mál 1104004 Allur ferill málsins
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar til að skoða möguleika á veitingu viðbótarfjármagns til Skólaskrifstofu Austurlands svo ráða megi tímabundið sálfræðing til að stytta biðlista.Bæjarráð tekur vel í tillögur Skólaskrifstofunnar og er tilbúið að leggja sitt af mörkum að því gefnu að önnur sveitarfélög á starfsvæðinu taki jafnframt þátt. Bæjarráð óskar eftir nánari áætlunum um kostnað vegna verkefnisins og bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
-
10. Alþjóðleg skýrsla um sveitarstjórnarstigið
Mál 1205143 Allur ferill málsins
Framlögð fyrirspurn frá United Cities and Local Governements ( UCLG ) sem eru alþjóðasamtök sveitarfélaga en Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að samtökunum. Samtökin gæta hagsmuna sveitarstjórnarstigsins á alþjóðavettvangi þ.á m. gagnvart Sameinuðu þjóðunum og stofnunum þess. Unnið er að skýrslugerð á vegum samtakanna og leitað er eftir að forsvarsmenn 10 stærstu sveitarfélaganna í landinu svari spurningarlista.Bæjarráð samþykkir að taka þátt og svara fyrirspurnum.
-
11. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2012
Mál 1205103 Allur ferill málsins
Boðað er til fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 27. og 28. september 2012.
-
12. Memorandum of the JEFES Cities
Mál 1205020 Allur ferill málsins
Vinabær Fjarðabyggðar í Finnlandi, Jyväskylä, býður tveimur fulltrúum til að taka þátt í LUCI ráðstefnu 19. - 22. september nk. Ráðstefnan er um raflýsingu í dreifbýlum samfélögum, hönnun mannvirkja með tengingu við lýsingu.Bæjarráð þakkar fyrir gott boð en getur ekki þekkst boðið að þessu sinni.
-
13. Ráðning í starf fjármálastjóra 2012
Mál 1204031 Allur ferill málsins
Á símafund er mætt Helga Jónsdóttir ráðgjafi hjá Capacent.
Bæjarstjóri lagði fram tillögu ásamt greinargerð um að Indriði Indriðason verði ráðinn sem fjármálastjóri Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.
-
14. Sumarstörf hjá Fjarðabyggð 2012 - 17 ára og eldri
Mál 1201122 Allur ferill málsins
Tillaga mannvirkjastjóra frá 31.maí um ráðningar á níu einstaklingum í sumarstörf til viðbótar við þá sem áður höfðu verið ráðnir. Kostnaði er mætt með tilfærslu fjármuna í gatnagerð og umhverfismálum milli kostnaðarliða. Fjarðabyggð hefur þegar ráðið 36 einstaklinga í sumarstörf á framkvæmdasviði auk 160 ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára.Bæjarráð samþykkir tillögu enda verði kostnaði haldið inn fjárheimilda ársins.
-
15. Fræðslu- og frístundanefnd - 26
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 26 frá 30.maí lögð fram.
-
16. Hafnarstjórn - 99
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 99 frá 29 maí lögð fram til kynningar.
-
17. Atvinnu- og menningarnefnd - 31
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 31 frá 31.maí lögð fram til kynningar.