Úthlutun íþróttastyrkja í Fjarðabyggð
Mál 1204122 Fyrst á dagskrá 30. apríl 2012, síðast 7. júní 2012. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundirStyrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 292 liður 3
Mismunum í úthlutun íþróttastyrkja í Fjarðbyggð
Framlagt bréf Blakdeildar Þróttar í Neskaupstað þar sem fjallað er um úthlutanir íþróttastyrkja til félaga. Vakin athygli á starfsemi blakdeildarinnar og mismun sem deildin telur vera í styrkveitingum til félaga. Þá er farið fram á aukastyrkveitingu til deildarinnar til jafnræðis við aðrar íþróttagreinar.
Búið er að úthluta styrkjum til íþróttamála samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun ársins 2012. Stefnt er fara yfir reglur um úthlutun á íþróttastyrkjum fyrir árið 2013. Bæjarráð býður formönnum Þróttar og blakdeildar á fund 14. maí n.k.
Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 114 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 292“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Mismunum í úthlutun íþróttastyrkja í Fjarðbyggð
-
Bæjarráð, fundur 296 liður 1
Á fund bæjarráðs er mætt Þorbjörg Jónsdóttir formaður blakdeildar Þróttar og Eysteinn Þór Kristinssson varaformaður Þróttar.Til umræðu var úthlutun styrkja til íþróttafélaga og starfsemi blakdeildarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 116 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 296“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.