Bæjarráð, fundur 292
30. apríl 2012, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 114 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð
Mál 1101233 Allur ferill málsins
Fram lögð tillaga um skipulag stjórnunar í sameiginlegum leik- og grunnskóla á Stöðvarfirði. Tillagan gerir ráð fyrir því að stjórnun stofnunar verði falin núverandi skólastjóra grunnskóla.Bæjarráð samþykkir tillögu.
-
2. Beiðni um lagfæringu á veg við Lyngbakka 4
Mál 1204116 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Sigtryggs S. Reynaldssonar þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð annist lagfæringar á götu við Lyngbakka 4 í Neskaupstað.
Vísað til framkvæmdasviðs og málið skoðist með tilliti framkvæmdaáætlunar 2012.
-
3. Mismunum í úthlutun íþróttastyrkja í Fjarðbyggð
Mál 1204122 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Blakdeildar Þróttar í Neskaupstað þar sem fjallað er um úthlutanir íþróttastyrkja til félaga. Vakin athygli á starfsemi blakdeildarinnar og mismun sem deildin telur vera í styrkveitingum til félaga. Þá er farið fram á aukastyrkveitingu til deildarinnar til jafnræðis við aðrar íþróttagreinar.
Búið er að úthluta styrkjum til íþróttamála samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun ársins 2012. Stefnt er fara yfir reglur um úthlutun á íþróttastyrkjum fyrir árið 2013. Bæjarráð býður formönnum Þróttar og blakdeildar á fund 14. maí n.k.
Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
4. Framkvæmdir við húsnæðisúrræði í málaflokki fatlaðs fólks - áætlanagerð sveitarfélaga og þjónustusvæða
Mál 1204128 Allur ferill málsins
Fram lagður tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 26.apríl þar sem óskað er eftir svörum um framkvæmdaáætlanir Fjarðabyggðar í búsetumálum fatlaðs fólk. Óskað er eftir svari fyrir 11.maí.Vísað til umsagnar félagsmálanefndar, félagsmálastjóra og mannvirkjastjóra. Leggja þarf umsögn fyrir bæjarráð 7. maí n.k.
-
5. Ársfundur Starfsendurhæfing Austurlands 2012
Mál 1204101 Allur ferill málsins
Fram lögð árskýrsla og ársreikningur StarfA fyrir árið 2011 til kynningar.
-
6. Stofnfundur Austfirskra stoðstofnana AST 8.maí 2012
Mál 1204115 Allur ferill málsins
Boðað er til stofnfundur Austfirskra stoðstofnana - AST - í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði 8. maí 2012 n.k. kl. 13:00.Bæjarráð felur bæjarritara og forstöðumanni stjórnsýslu að yfirfara gögn sem tengjast stofnfundinum. Vísað til umræðu í atvinnu- og menningarnefnd.
-
7. Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2012
Mál 1204010 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnarfundar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar frá 16.apríl lögð fram til kynningar ásamt ársreikningi sjóðsins fyrir árið 2011.
-
8. Íbúafundir og viðtalstímar bæjarfulltrúa
Mál 1204008 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að opnir fundir um umhverfismál verði haldnir í viku 20 á Norðfirði og Reyðarfirði.
-
9. Eyðilegging skóga vegna snjóflóðamannvirkja
Mál 1201218 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Skógræktarfélags Íslands en það var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 23. janúar 2012.Vísað til afgreiðslu mannvirkjastjóra.
-
10. Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2012
Mál 1105180 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Þróunarfélags Austurlands frá 27. apríl s.l. ásamt tilnefningum í stjórn AST og fagráð.
-
11. Fjárhagsstaða Fjarðaferða ehf. - frjáls nauðasamningur
Mál 1110173 Allur ferill málsins
Lagður fram til afgreiðslu kaupsamningur um hluti í Fjarðaferðum ehf. Bæjarráð samþykkir kaupsamning fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir jafnframt að hlutafé verði fært niður sem nemur 1.410.000 en hluturinn er 6,9%. Jafnframt hnykkir bæjarráð á því að leysa verði samgöngumál á sjó við Mjóafjörð. Bæjarráð mun halda fund í Mjóafirði í maí og taka m.a. málefni Mjóafjarðar til umræðu á þeim fundi.
-
12. Fræðslu- og frístundanefnd - 25
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar nr. 25 frá 25.apríl lögð fram.