Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Lokun útibúa Landsbankans á Eskifirði og Fáskrúðsfirði

Mál 1205135 Fyrst á dagskrá 4. júní 2012, síðast 7. júní 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurFáskrúðsfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 296 liður 2

    Framlagt bréf Landsbankans hf. frá 31.maí þar sem óskað er eftir afnotum af húsnæði Félaga eldri borgara á Eskifirði og Fáskrúðsfirði fyrir þjónustu Landsbankans.Bæjarráð mótmælir efni bréfs Landsbankans þar sem óskað er eftir aðstöðu í húsnæði bæjarins eftir að bankinn hefur lokað útibúum sínum.  Bæjarráð hafnar því að húsnæði verði nýtt til almennrar þjónustu fjármálastofnana en Félögum eldri borgara sé frjálst að velja hvaða fjármálastofnun þeir kjósa að taka á móti í húsnæði sem þau hafa til afnota.  Bæjarráð telur sig ekki geta hafa afskipti af hvaða þjónustu félögin þiggja í húsnæðinu.  Bæjarráð er á þessum tímapunkti ekki tilbúið til að taka afstöðu til framtíðarnýtingar á húsnæði bankans þar sem hann hefur lagt niður starfsemi sína nýverið.

  2. Bæjarstjórn, fundur 116 liður 1.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 296“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is